Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, svarar

3. júní 2012 › 21:33

Mér hefur borist svohljóðandi svar við þessum pósti:


,,Heill og sæll, Þórður Björn!


Alþjóðlega framleiðslufyrirtækið Foxconn er 10. stærsta fyrirtæki veraldar og starfsfólk þess er yfir 1,2 milljónir talsins. Foxconn er stærsti framleiðandi rafeindabúnaðar í veröldinni og því sem næst öll stærstu upplýsingatæknifyrirtækin eru meðal viðskiptavina. Og þar sem ótrúlega mörg raftæki eru í dag knúin áfram af einhvers konar tölvum og örgjörvum, þá er afar sennilegt að þau innihald allflest íhluti frá Foxconn.


Þar með má ljóst vera að aðstæður starfsfólks hjá Foxconn eiga erindi við flesta endursöluaðila rafeinda- og tölvubúnaðar í veröldinni. Okkur er jafn brugðið og öðrum við að lesa þessar fréttir, þótt við höfum takmarkaða aðstöðu til að stýra vali erlendra samstarfsaðila okkar á birgjum. Við á litla Íslandi erum sannast sagna dálítið varnarlaus í þessum efnum. Við fylgjumst þó náið með framvindu mála hjá Foxconn og munum láta okkar helstu samstarfsaðila vita af þungum áhyggjum okkar.


Einnig viljum við í framhjáhlaupi hvetja aðra íslenska endursöluaðila rafeinda- og tölvubúnaðar til að láta ekki sitt eftir liggja í þessum efnum og gera slíkt hið sama. Raddir örfárra íslenskra fyrirtækja hafa kannski lítið að segja á alþjóðavettvangi, en sameiginlegt átak getur vonandi skipt einhverju máli.


Takk fyrir að fylgjast grannt með þessu máli og takk fyrir að hnippa í okkur!


Kær kveðja,
-Gestur"



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.