Í kvöld munu fulltrúar Íslands taka þátt í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin er í Aserbaijan. „Í Aserbaijan eru mannréttindi ekki virt. Friðsamir mótmælendur eru handteknir og beittir ofbeldi, blaðamönnum er hótað og þeim rænt, örðugt er að reka óháða fréttamiðla og sjálfsritskoðun er mikil. Stjórnvöld herða eftirlit með netnotkun og þrengja að tjáningarfrelsi á netinu. Yfirvöld vilja senda þau skilaboð að mótmæli almennings verði ekki liðin, né heldur nokkur tilraun til að sameina almenning í andstöðu við núverandi stjórnvöld." Þetta kemur fram á heimasíðu Amnesty International sem er nú í herferð gegn mannréttindabrotum í Aserbaijan.
Herferðin er sett í gang samhliða söngvakeppninni og hefur hópur íslenskra tónlistarmanna tekið þátt í þessari herferð með Amnesty. Þau gefa mannréttindum tólf stig í ár og vísa þannig til stigagjafakerfis söngvakeppninnar vinsælu. Þeirra á meðal er Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur talað fyrir því að keppnin verði sniðgengin í ár af okkar hálfu mótmælaskyni. Sú varð hins vegar ekki raunin.
Þrátt fyrir að hugmynd Páls Óskars sé góðra gjalda verð og margir hafi orðið fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun RÚV að taka þátt í ár hefur verið bent á að ákvörðun RÚV hafi þrátt fyrir allt verið rétt. Því með því að mæta til Bakú sé kastljósi fjölmiðla beint meðal annars að ástandinu í Aserbaijan. Þó að það sé dapurlegur vitnisburður um okkur sem samfélag að það þurfi heila söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til að alvarleg mannréttindabrot fangi athygli okkar sýnist mér nokkuð til í máli þeirra sem rökstutt hafa stuðning sinn við ákvörðun RÚV með þessum hætti.
Þess vegna veldur sú afstaða íslensku keppendanna sem fram kom í viðtali við Stöð 2 í gær miklum vonbrigðum: „Það hefur oft verið tekið fram að þetta sé ekki pólitískur vettvangur og við erum auðvitað bara komin hingað til að taka þátt í lagakeppninni og mannréttindabrot eru náttúrulega ekki hluti af þessari keppni", sagði Gréta Salóme.
Ef mannréttindabrot eru ekki hluti af þessari keppni þarf þá ekki að endurskoða reglurnar? Og er forsvaranlegt að líta undan þegar jafn alvarlegt ástand blasir við? Jafnvel þó maður sé beðinn um það. Þó keppnin sé haldin í öðru landi er hún ekki haldin í öðru sólkerfi. Á meðan söngvakeppnin er hluti af þeim raunveruleika sem við búum við og mannréttindabrot fyrirfinnast í þeim raunveruleika verða mannréttindabrot hluti af keppninni. Að halda öðru fram er afneitun.
Nina Simone, sem var ekki bara frábær söngkona og píanisti heldur líka ötul baráttukona fyrir mannréttindum, sagði á sínum tíma að hún liti svo á að það væri skylda listamanna að endurspegla samtímann. Listamenn hefðu að sjálfsögðu val um hvort þeir kysu að gera það, en í ljósi aðstæðna sæi hún sér annað ekki fært.
Ég vona að íslensku keppendurnir gerist hugrakkir og átti sig á að þeir eru í einstakri aðstöðu til að láta gott af sér leiða. Þau ættu því að sjálfsögðu að tala opinberlega um mannréttindabrotin í Aserbaijan.
