Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Svar við gallakalli Illuga

25. maí 2012 › 01:44

Illugi Jökulsson auglýsir eftir göllum á frumvarpi stjórnlagaráðs á bloggsíðu sinni.


Þó ég sé hrifinn af mörgu sem fram kemur í frumvarpinu, eins og jöfnu vægi atkvæða, auðlindaákvæði, auknu persónukjöri og þjóðaratkvæðagreiðslum, þætti mér ekki verra ef frumvarpið væri róttækara, hvað sumt varðar.  Hér eru nokkur dæmi:


1. Betur færi á að allar náttúruauðlindir væru skilgreindar í þjóðareigu.  Land þar með talið.


2. Betur færi á að það væri ekki undir hæl Alþingis lagt hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um mál að frumkvæði kjósenda verði ráðgefandi eða ekki.


3. Betur færi á að eignaréttur lántakanda og lánveitanda væri tryggður til jafns.  Það er að (veðsett) eign lántakanda sé varin fyrir áhrifum verðbólgu til jafns við (kröfu)eign lánveitanda.


4. Betur færi á að engin mál væru undanskilin þjóðaratkvæðagreiðslum nema afnám mannréttinda.


5. Betur færi á að leggja niður embætti forseta samhliða auknum möguleikum almennings til að taka málin í sínar hendur þegar almenningi finnst ástæða til.


6. Betur færi á að setja þak á eignarrétt.


7. Betur færi á fullum aðskilnaði ríkis og kirkju.


Ég ætla samt ekki að bölsóttast yfir því að frumvarp stjórnlagaráðs sé ekki eins og ég hafi skrifað það.  Enda væri óraunhæft af minni hálfu að ætlast til að málamiðlun 25 manna út í bæ hljómi eins og eitthvað sem ég samdi. 


Spurningin sem ég þarf að spyrja mig að er hinsvegar þessi:  Er frumvarp stjórnlagaráðs betra heldur en núgildandi stjórnarskrá?



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.