ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 3m/s SSW
Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er starfsmaður Hreyfingarinnar, varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og í varastjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.

Norðurþing, Nubo og lögin

20:16 › 9. febrúar 2012

Kaupverðið sem fasteignafélag Huang Nubo var sagt reiðubúið að greiða fyrir Grímsstaði á Fjöllum er um milljarður króna.


Samkvæmt 64. gr. sveitarstjórnalaga ber sveitarstjórn að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum.  Skyldu þessari skal sveitarstjórn fullnægja m.a. með því að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum.


Þegar ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2010 er tekinn til skoðunar kemur í ljós að tekjur Norðurþings, A og B hluta, voru rúmlega 2,3 milljarðar.  Skuldir og skuldbindingar voru hinsvegar rúmlega 5,9 milljarðar.  Hlutfallið mælist 257%.


Í ljósi þeirra frétta að Norðurþing hyggist taka lán fyrir kaupum á Grímsstöðum, og auka þannig við skuldir sem nú þegar mælast yfir þeim mörkum sem skilgreind eru í lögum, er ástæða til að staldra við og velta fyrir sér hvort áformin standist lög.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?