ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 3m/s SSW
Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er starfsmaður Hreyfingarinnar, varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og í varastjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.

  • Íbúakosningar um Nasa-málið

    23. maí 2012

    Nú greinir fólki á um hvort það eigi byggja hótel við Austurvöll eða ekki.


    Um ágreininginn sjálfan ætla ég ekki að hafa mörg orð að sinni.  Mig langar hins vegar að vekja athygli á þeim mögleika að íbúakosningar verði haldar um málið. 


    Því ef 20% íbúa óska almennrar atkvæðagreiðslu um mál skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.

    Skrifa athugasemd

  • Guðmundur Steingrímsson fyrir allan peninginn

    22. maí 2012

    Ríkisstjórnin kynnti á dögunum Fjárfestingaáætlun fyrir Ísland 2013 - 2015, með fyrivara um tvíþætta fjármögnun. 


    Annars vegar er horft til tekna vegna veiðigjalda og leigu aflahlutdeilda.  Hins vegar er gert ráð fyrir arði og eignasölu hluta ríkisins í bönkum.  Fyrivararnir felast í að Alþingi samþykki lagafrumvörp ríkisstjórnarinnar um veiðigjöld og stjórn fiskveiða  og að áætlun Banaksýslu ríkisins gangi eftir.


    Ríkisstjórnin og Guðmundur Steingrímsson eru nú búin að stilla mönnum upp við vegg.  Í áætluninni felast þau skilaboð til annarra þingmanna, hvort sem þeir tilheyra meirihlutanum eða minnihlutanum, að annað hvort samþykki þeir þessa áætlun eða leggist gegn hagvexti og framförum.


    Þá má spyrja hvort áætlunin hafi yfirhöfuð verið rædd innan stjórnarflokkanna og stofnana þeirra.  Ef einhver hefur séð auglýsingu um opinn fund á þeirra vegum um ráðstöfun þessara tæpu 90 milljarða sem um ræðir má sá hinn sami gefa sig fram.


    Getur hugsast að skynsamlegra sé að nota þessa peninga í annað?  Til dæmis í að borga niður skuldir ríkissjóðs?  Eða til að fjármagna almenna skuldaleiðréttingu á lánum heimilanna?


    Umræðu um það hvort við viljum yfirhöfuð selja hlut ríkisins í bönkunum skortir.  Hefur reynslan kennt okkur að einkaaðilar séu betur til þess fallnir að reka fjármálastofnanir heldur en hið opinbera?  Almenningur treystir í það minnsta ekki bankakerfinu ef marka má skoðanakannanir. 


    Og af hvers vegna ættum við að selja hlut ríkisins í bönkunum nema stjórnvöld dragi til baka fyrirliggjandi pólitíska yfirlýsingu um að allar innstæður í íslenskum bönkum séu að fullu tryggðar?

    Skrifa athugasemd

  • Tímabundið atvinnuleyfi fyrir hælisleitendur

    21. maí 2012

    Nokkuð hefur verið fjallað um hælisleitendur á Íslandi að undanförnu.


    Í því sambandi er tvennt sem huga þarf að:


    Annars vegar þarf að hraða afgreiðslu mála þeirra sem hingað leita.


    Hins vegar hlýtur að koma til álita að veita tímabundið atvinnuleyfi á meðan afgreiðslu mála stendur, sérstaklega ef langan tíma tekur að afgreiða mál.


    Það hlýtur að vera miklu betra fyrir fólk sem hingað kemur að eiga þess kost að geta tekið þátt í samfélaginu fremur en að dvelja dögum, vikum og jafnvel mánuðum saman á gistiheimili í Njarðvík.


    Þar að auki væri það ódýrara fyrir samfélagið ef það fólk sem um ræðir gæfist tækifæri á að framfleyta sér sjálft.

    Skrifa athugasemd

  • KK berst gegn sægreifum og ríkisstjórn: ,,Við viljum stoppa þetta frumvarp"

    21. maí 2012

    Á annað þúsund hafa nú skorað á stjórnvöld að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarfyrirkomulag við stjórn fiskveiða.  Aðstandendur verkefnisins voru í Kolaportinu um helgina að safna undirskriftum.  Einn af þeim sem leit við var tónlistarmaðurinn KK sem lék nokkur lög og ræddi við fólk á milli laga.  Í myndbandi úr Kolaportinu má sjá og heyra KK segja:


    Við erum hérna að vekja athygli á þjófnaði sem er búinn að eiga sér stað í fjöldamörg ár.  Það eru sægreifar margir hverjir sem halda því fram að við verðum atvinnulaus öll ef þeir hætta að fá milljónir á mánuði og einn og hálfan milljarð í arð og svo framvegis.  Við viljum vekja athygli á þessu og hvetjum ykkur til að skrifa undir til að mótmæla þessu óréttlæti sem að hefur átt sér stað og núna ætlar ríkisstjórnin að festa þetta í sessi með nýjasta frumvarpinu sínu.  Við viljum stoppa þetta frumvarp af með undirskriftum.  Svo ég skora á ykkur að taka þátt í þessu og fylgjast með þessu."


    Undirskriftasöfnunin fer fram á www.thjodareign.is og er textinn sem fólk setur nafn sitt við svohljóðandi:


    Við undirrituð skorum á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarfyrirkomulag við stjórn fiskveiða. Verði Alþingi ekki við þessari áskorun verður hún ásamt undiskriftum okkar færð forseta Íslands sem áskorun um að synja staðfestingar nýjum lögum um stjórn fiskveiða. Áskorun þessi tekur aðeins til nýrra laga um stjórn fiskveiða en ekki til laga um auðlindagjald."


    Skrifa athugasemd

  • Spuninn gegn stefnumálum Hreyfingarinnar

    19. maí 2012

    Ýmsir, þ.m.t. aðrir þingmenn, hafa gerst stóryrtir síðustu daga í tengslum við tilraun þingmanna Hreyfingarinnar til að koma helstu stefnumálum sínum í gegn.


    Í því sambandi hefur margoft verið látið að því liggja að Hreyfingin sé gengin til liðs við ríkisstjórnina, nokkuð sem þingmenn Hreyfingarinnar hafa þvertekið fyrir, sbr. yfirlýsingu þeirra 14. maí sl:


    ,,Við höfum aldrei heitið ríkisstjórninni stuðningi gegn vantrausti en höfum stutt öll góð mál óháð uppruna þeirra." 


    Það sem mér er fyrirmunað að skilja er hvers vegna stjórnarandstöðuþingmenn sem halda þessu fram leggja ekki fram vantrausttillögu til að sannreyna kenningu sína í stað þess að rífa niður störf þingmanna Hreyfingarinnar. 


    En hvað veit ég, kannski hentar sumum spuninn betur.

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?