Hugsjónir - Tölur!

Hugsjónir - Tölur!

Benedikt S. Lafleur er talnaspekingur, listamaður, sjóbaðsfíkill og útgefandi. Hann rýnir og les í tölur dagsins en þeim sem hafa áhuga á greiningu út frá fæðingardegi og öðru slíku er bent á að senda honum tölupóst á lafleur@simnet.is. Þá heldur Benedikt út vefsíðunni numerologylafleur.com.

  • Að Synda eða Sökkva!

    11. október 2012

    Sundið er spennandi mynd um æsilegar raunir tveggja
    Íslendinga sem keppa að því að verða fyrsti Íslendingurinn
    að synda yfir Ermarsundið - Mount -Everest sjósundsins.
    Ermarsundið reynir á andlegan styrk ekki síður en líkamlegan.
    Þá sem telja sig komast á kröftunum einum þrýtur oftast
    andlegan styrk í baráttu við náttúruöflin.

    Í bland við hina æsispennandi glímu við erfiðasta sund í
    heimi, tvinnar myndin myndskeiðum af sögulegum sundum
    og viðburðum í lífi þjóðar þar sem hafið leikur stórt hlutverk.
    Frá árinu 1880 til 1990 drukknuðu 5354 Íslendingar,
    margir vegna þess að þeir kunnu ekki að synda.

    Nánari upplýsingar er að finna á;
    www.facebook.com/Ermarsund

    Skrifa athugasemd

  • Nían og Guð!

    9. október 2012

    Í dag: Talan 18 eða 9 Úr smiðju Númeralógíu Lafleur: Þversumma tölunnar 18 er hin óeigingjarna þjónustutala 9.


    Nían er tala internetsins, blaðamennsku, verslunar og allra þjónustgreina. Nían eru tónbylgjurnar sem berast til eyrna okkar, alheimsorkan, guð og allur himingeimurinn.


    9 ber með sér mikinn hugsjónakraft sem vill þjóna hagsmunum heildarinnar. Félagsstörf, pólitík og samfélagsleg málefni eru hennar ær og kýr, stundum á kostnað fjölskyldu og heimilis. Nían mun senda okkur út í geiminn og tengja okkur saman. Vonandi í krafti þess að við ræktum garðinn okkar líka!


    Ef sjöan er heilagur andi eða sjálf kærleiksorkan innra með okkur og í öllum lifandi verum, þá er nían guð og alheimsorkan allt í kring og alls staðar.


    Sjá allt um tölurnar á alþjóðlegri vefsíðu:


    www.numerologylafleur.com


    Býð upp á mismunandi greiningar, einkatíma, fyrirlestra, starfsmannafundi, veislur, samkvæmi, fyrirtæki....


    Einnig grunnnámskeið og meiriháttar námskeið og loks meistarapróf í talnaspeki.

    Skrifa athugasemd

  • Fylgi Andreu Tvöfaldast!

    29. júní 2012

    Forsetaframbjóðandinn:


    Andrea Jóhanna Ólafsdóttir    2.8.1972


    Á þeim óvissutímum sem við lifum þurfum við sterka forystu með skýra hugsjón um að virkja lýðræðið og vilja fólksins í allri ákvarðanatöku yfirstjórnar landsins. Andrea er sá forsetaframbjóðandi sem hefur skýrustu hugsjónina að þessu leyti með fullri virðingu fyrir hinum frambjóðendunum. Íslendingar verið óhræddir við að kjósa um hugsjónir ykkar. Það er aldrei glatað atkvæði. Nánar um persónuleika Andreu, tölur hennar og útgeislun:


    Herforingi Kærleikans:  Andrea er bæði með fæðingartöluna og nafnatöluna 11. Meistaratalan ellefu er tala leiðtogans og frumkvöðulsins. Hún er afspyrnu drífandi og framkvæmdasöm og gefst ekki upp fyrr en hún hefur komið hugðarefnum sínum í mark. Lokatala Andreu er hins vegar mun mildari og feminískari, hinn kvenlega tala kærleikans, 2, hér með tvöföldu vægi meistaratölunnar 22. Tölurna 4 og 2 finnum við líka oft hjá Andreu og veitir hún gjarna sterkum hugsjónatölum Andreu aðhald og jarðtengingu og þörf fyrir áþreifanlega niðurstöðu. Fjarkinn er helsta vinnutalan, sem ljær Andreu þá eljusemi og dugnað sem meistaratalan 11 gerir kröfu um. Þannig sjáum við bæði hina andlegu tölu 7, tölu hugsjóna og réttlætiskenndar sem er tilbúin að fórna öllu fyrir sannleikann og hugsjónirnar, birtast með mjög áberandi hætti á sama tíma og hina kvenlegu og móðurlegu tölu 2 sem og fjölskyldu- og vinnutöluna 4 sem smita frá sér hina miklu þörf fyrir nánd og að byggja upp umhverfisvænt líf í faðmi fjölskyldunnar.


    Andrea er því í senn geysiöflug hugsjónamanneskja, sem er tilbúin að fórna eigin hagsmunum fyrir það sem hún trúir á um leið og hún kann að meta hvað er raunhæft hverju sinni og taka tillit til annarra og hlusta á skoðanir þeirra sem í kringum hana eru.


    Andrea er í senn jarðbundin og hugsjónarík sem er fremur sjaldgæft. Hún er sannkölluð baráttukona með ljónshjarta, enda í ljónsmerkinu. Andrea er kona sem maður vill hafa við hlið sér í lífsins stríði og baráttu. Eins konar Jóhanna af Örk Íslands. Hún hefur og getur enn hjálpað okkur töluvert í kreppunni. Þrjóska Andreu sem stafar af tölunni 11 er í senn styrkur hennar og galli, en tvisturinn er nægilega sterkur til að mýkja þá stífni með vissu næmi og hæfni til að taka tillit til annarra, jafnvel í miðri orrustu.


    Í raun eru andstæður Andreu, 11 vs 22 og 7 vs 4 og 2 hennar helsti aðal, því þær vega hvor aðra upp og skila henni og öðrum varanlegri árangri en ella þó þær virki bremsandi í byrjun.


    Sjá nánar um greiningu á öllum forsetaframbjóðendum í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt og allt um tölurnar og greiningar á www.numerologylafleur.com

    Skrifa athugasemd

  • Forseti Fólksins!

    21. júní 2012

    Andrea sýndi það og sannaði með frábærri frammistöðu sinni á Ríkissjónvarpinu að hún hefur alla burði til að valda forsetaembættinu. Hún kom mjög vel undirbúin í viðtalið. Enga hnökra var að finna í viðtalinu og vinnubrögð hennar voru í senn yfirveguð og öguð. Það er ekki alltaf sem svo einlægar og sannar og jafnvel róttækar hugsjónir fara saman við agaðan undirbúining en í tilviki Andreu virðist svo vera og vekur það hjá manni traust með þessum óumdeilda leiðtoga fólksins. Hér er á ferðinni manneskja sem er tilbúin að berjast fyrir hugsjónir sínar og fólksins og fara alla leið.


    Við þurfum á manneskju eins og Andreu að halda, ekkert sérstaklega í stjórnmálin heldur og sem forseta fólksins. Við lifum á óvissutímum og ný heimskreppa, jafnvel matvælakreppa, ekki fjarstæður veruleiki. Evrópa á í kröggum sem aldrei fyrr og í mikilsmetnir áhrifamenn sambandsins eru óhressir með hugmyndafræðilegt skipbrot Sambandsins sem og svartsýnir á efnahagskerfi þess.


    Sjálfur er ég bjartsýnismaður. Ég var mjög hlynntur hugmyndafræði Evrópusambandsins til að byrja með. Ég kaus yfir mig þá vinstri velferðarstjórn sem situr nú því ég hafði trú á því að henni tækist að varða veginn fyrir nýtt Ísland, eins og margir aðrir. Ég var ekki einungis fyrir vonbrigðum með stjórnina heldur fyrst og fremst með þá þróun sem á sér stað í Evrópu og hefur og mun snerta okkur á Íslandi líka. Ég er hins vegar mun bjartsýnni fyrir hönd Íslands en Evrópu eða umheimsins. Við munum aldrei líða matarskort á Íslandi, þar sem gæði landsins og lega munu tryggja okkur mat svo fremi sem við ofnýtum ekki landsins stofna.


    Í dag höfum við stórkostlegt val til að ganga lengra í viðreisn landsins og að auka réttlæti og jöfnuð í landinu og um leið tryggja að einstaklingarnir fái notið sín og blómstrað í heilbrigðri samkeppni með stuðnings ríkisvalds sem kann þá kúnst að láta hlutina virka og nýta fjármagnið sem allra best hverju sinni.


    Andrea er einlæg hugsjónakona sem virðist vel treystandi til að leiða lýðþræðisþróunina áfram til sigurs og sameina hvatir almennings til að lifa heilbrigðu, jarðbundnu en einnig hugsjónaríku lífi, landi til heilla næstu framtíð.


    Ný Sýn!

    Skrifa athugasemd

  • Frískandall Alþingis eina ferðina ENN!

    20. júní 2012

    Alltaf er ég jafnhissa þegar Alþingi fer í sitt langþráða langa frí. Hér er ég ekki að segja að Alþingismenn vinni ekkert í þessu svokallaða fríi á þinghaldi. En í raun er það algjör skandall, fyrirgefið, hneyksli, að Alþingi skuli yfir höfuð fara í frí og tilheyrir gamalli menningu og þeim aðstæðum sem bændasamfélagið setti þingmönnum. Ég vil reyndar ganga enn lengra og banna þingmönnum að fara í lengra frí en 4-5 daga í einu, þannig að þeir tækju frí sitt í skömmtum og varamenn væru skipaðir í þeirra stað á meðan. Alveg kæmi til greina að ráða aðstoðarmenn þeim til handa, ekki endilega einn á hvern, heldur svona 5-10 stk sem gætu aðstoðað í mestu önnum.


    Taka þarf á vasapeningum í ráðuneytum og annars staðar, laun þegar embættismenn láta af embætti, þar með forsetans, daglaunapeninga og önnur fríðindi, þ.á.m skattfríðindi og afnema allt draslið. Þar myndu nást einhverjir milljarðar.


     


     

    Skrifa athugasemd