Hugsjónir - Tölur!

Hugsjónir - Tölur!

Benedikt S. Lafleur er talnaspekingur, listamaður, sjóbaðsfíkill og útgefandi. Hann rýnir og les í tölur dagsins en þeim sem hafa áhuga á greiningu út frá fæðingardegi og öðru slíku er bent á að senda honum tölupóst á lafleur@simnet.is. Þá heldur Benedikt út vefsíðunni numerologylafleur.com.

  • Virkjun Andans!

    16. mars 2012

    Í dag: Talan 16 eða 7 Úr smiðju Númeralógíu Lafleur: Þversumma 16 er andlega talan 7, oft nefnd heilög tala.


    Sjöan felur í sér einlæga og fórnfúsa andlega leit. Hún er rannsakandi og sífellt leitandi betri lausna. Hún er fremur innhverf en úthverf. Fylgir hugsjónum sínum út í ystu æsar eins og fimman en er ekki eins opinská og djörf og hún. Við fáum líka þversummuna sjö úr hinni mögnuðu meistaratölu, áhrifa- og peningatölunni, 88/7. Þeir sem hana hafa ættu að gæta þess að velja sér heilbrigðar og góðar hugsjónir til að hafa að leiðarljósi og láta ekki spillast, því þeir geta komist til mikilla metorða og haft stórkostleg áhrif.


    Jón Ásgeir Jóhannesson er meðal þeirra sem hefur þessa sveiflukenndu meistaratölu, sjá betur í bók minni um talnaspeki, Númeralógía I-II.


    Sjá líka í bókinni þversummu hugleiðslutækninnar Sahaja yoga, en hún er einnig talan sjö, sbr. umfjöllun mína um daginn.


    Sahaja yoga er þekkt aðferð og viðurkennd um allan heim til að virkja sjálfa lífsorkuna. Hægt er að nema hana hér, bæði í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki. Sjá: www.sahajayoga.is


    Allt um tölurnar og persónuleika þinn og tilgang: www.numerologylafleur.com Býð upp á mismunandi greiningar, einkatíma og námskeið i talnaspeki.

    Skrifa athugasemd

  • Ástin og samfélagið

    15. mars 2012

    Í dag: Talan 15 eða 6 Úr smiðju Númeralógíu Lafleur: Þversumma tölunnar 15 er hin fagurfræðilega sexa. Andstætt því sem margir gætu talið er hefur sexan ekki endilega þær kynferðislegu eða ástríðufullu tilhneigingar sem nafnið gefur til kynna og fimman er þekktari fyrir, þó hún geti staðið fyrir lystisemdir holdsins og lægri hvatir.


    Þannig getur sexan verið hvort heldur nautnaseggur eða fagurkeri sem hneygist að æðri gildum, klassískum listum, hönnun, tísku eða formgerð skapandi greina. Á meðan fimman stæði fyrir logandi ástríður tilhugalífsins gæfi sexan þeim áþreifanlegt vægi með blómvöndum og brúðkaupi.


    Sexan er fjölskyldu- og samfélagsvæn. Hún vill skapa sér fallegt heimili og á auðvelt að axla ábyrgð og rækja skyldur sínar. Hún er samviskusöm og sveigjanleg í samskiptum. Lög og réttur eru hennar bandamenn.


    Bak við sexuna í dag standa hins vegar öllu djarfari tölu, einn og fimm, sjá umfjöllun um þær tölur síðustu daga og á alþjóðlegri heimasíðu Lafleur:


    www.numerologylafleur.com

    Skrifa athugasemd

  • Hugsjónaeldur!

    14. mars 2012

    Í dag: Talan 14 eða 5 Úr smiðju Númeralógíu Lafleur: Talan 14 hefur summuna 5 (1+4). Fimman er tala sjálfstæðis og frelsis. Hún er mjög drífandi og andlega hreinsandi, en á sama tíma logar hún af ástríðum og hugsjónaeldi. Hún er skapheit og lítið gefin fyrir að miðla málum. Fimman er annað hvorteða tala, enda mitt á milli áss og tíu. Hún fylgir fyrst og síðast eigin sannfæringu og er hreinskiptin með það.


    Talan fimm á auðvelt með að losa sig við óþarfa bruðl og meistaratalan 55 / 1 er mjög kröftug rekstrartala og kann að stýra hagkvæmum og praktískum rekstri. Fimman fer á bólakaf í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur og þess vegna mikilvægt að hún temji sér heilbrigðan lífsstíl.


    Sjá allt um tölurnar og til að fá greiningu á sjálfum sér og öðrum: www.numerologylafleur.com

    Skrifa athugasemd

  • 13: Happa - eða óhappatala?

    13. mars 2012

    Talan 13 er tala umbreytingar, hún krefst þess að maður hrindi draumum sínum og vilja í framkvæmd, sé hreyfanlegur á áþreifanlegan og afgerandi hátt.    


    Einn og þrír eru venjulega mjög drífandi og hreyfanlegar tölur. Það sem gerir töluna þrettán svo krefjandi er sú ólga sem innra með henni  býr og lýsir sér í hinum öru og hreyfanlegu tölum 1 og 3 sem byrgðar eru inni í hinum rammgerða fjarka, sem hættir til stöðnunar og kyrrstöðu. Áþreifanleiki fjarkans gerir á sama tíma þversagnarkennda kröfu um áþreifanlega niðurstöðu.


    Ef viðkomandi eigandi tölunnar 13 finnur ekki leið til að finna útrás sinni lausn eða fullnægju á ytra borði og með traustum hætti, er hætt við að utanaðkomandi öfl taki af honum allt frumkvæði og brjóti sér leið úr þessari spennutreyju fjarkans án þess hann (eigandinn) komi nokkrum vörnum við, og það stundum með mjög dramatískum hætti, t.d. með óhöppum eða áfalli.


    Miklu skiptir að viðkomandi taki sjálfur þeim breytingum sem umbreytingartalan krefur hann endalaust um og er þá meira en líklegt að það frumkvæði verði honum til blessunar. Talan þrettán kann því hvort heldur að vera happa – eða óhappatala, eftir því hvernig eigandi þessarar tölu tekur á eiginleikum hennar: Veldur hver á heldur.


    Sjá meira um tölurnar og persónulega greiningu:


    www.numerologylafleur.com

    Skrifa athugasemd

  • Kristur vs Hitler

    12. mars 2012

    Í gær: Talan 11 / 2


    Meistaratalan 11 er tala brautryðjandans, tala andlegrar hreinsunar, forystu og leiðsögn.


    Talan 11 var t,d. mjög áberandi að verki á sl ári. Í ár tekur ártalan 5 við, en fimman er einnig tala hreinsunar, sem þolir engar málamiðlun og lætur til skarar skríða.


    Ellefan hefur óbilandi trú á framkvæmdasemi sinni og hvikar ekki frá þeirri stefnu sem hún hefur tekið í krafti metnaðarins. Þessi metnaðarfulla og dugmikla meistaratala nær oft langt, því henni er ætlað að vera sýnileg eða áberandi. Henni er í mun að hjálpa öðrum eða heildinni (eins og summan 2 gefur til kynna) með frumkvöðlastarfi sínu og leiðsögn. Hér skiptir því öllu máli að hugmyndafræði hennar sé í eðli sínu heilbrigð, ef hún er það leiðir hún til gæfu og gengis, annars bölvunar.


    Færa má viss rök fyrir því að Kristsorkan sé knúin af orku ellefunnar. Hitler var hins vegar líka með nafnatöluna 11.


     


    Allt um tölurnar,


    fræðsla


    greining


    námskeið


    www.numerologylafleur.com

    Skrifa athugasemd