Hugsjónir - Tölur!

Hugsjónir - Tölur!

Benedikt S. Lafleur er talnaspekingur, listamaður, sjóbaðsfíkill og útgefandi. Hann rýnir og les í tölur dagsins en þeim sem hafa áhuga á greiningu út frá fæðingardegi og öðru slíku er bent á að senda honum tölupóst á lafleur@simnet.is. Þá heldur Benedikt út vefsíðunni numerologylafleur.com.

Andrea J. Ólafsd.: Jarðbundin - Leiðtogi - Hugsjónamanneskja!

24. maí 2012 › 09:04

Hér má sjá umsögn mína um Andreu út frá talnaspekinni, sjá nánar allt um tölurnar á www.numerologylafleur.com


Andrea er frumkvöðull út í gegn, sem berst fyrir félagslegum og fjölskylduvænum gildum. Býr yfir ótvíræðum leiðtogahæfileikum, bæði frá blautu barnsbeini og áunnum...


Mjög einlæg hugsjónamanneskja sem berst fyrir réttlæti heildarinnar. Gífurlegur metnaður og hugsjónir eru óslítandi par í lífi Andreu sem er tilbúin að færa ómældar fórnir fyrir betra samfélag.


Á sama tíma er Andrea mjög jarðbundin og vinnusöm sem hjálpar henni að hrinda hugsjónum sínum í framkvæmd, vinna með öðrum og tapa ekki sjónar á raunveruleikanum.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.