Í dag: Talan 21 eða 3
Úr smiðju Númeralógíu Lafleur:
Þversumma tölunnar 21 er hinn léttleikandi og skapandi þristur. Talan þrír er helsta listatalan, tala sköpunar, samskipta, miðlunar, tjáningar og hreyfingar, hraða og umskipta. Þristurinn er síbreytilegur og felur í sér stöðuga þróun og aðlögun. Án þristsins verður engin framþróun til og hættan á stöðnun er algjör.
Þristurinn er skemmtilegur og sveigjanlegur, hreyfanlegur. Hann er opinn fyrir breytingum og hefur þörf fyrir þær. Nafnið Lafleur hefur tölugildið 3 í upphafsstafnum L, 3 þrista inní nafninu og þversummuna 3 úr nafninu öllu. Talan
21 hefur að geyma þróun sem á sér fremur auðveldan aðdraganda.
Sjá allt um tölurnar og hvernig hægt er að nálgast greiningu: www.numerologylafleur / www.lafleur.is
