Úr smiðju Númeralógíu Lafleur:
Í dag: Talan 20 eða 2. Talan 20 færir okkur þversummuna 2. Tvisturinn felur í sér kvenlega eða móðurlega eiginleika, eins og ást og umhyggju, skjól, vernd, varkárni og hlustun. Talan tveir er tala móður jarðar og náttúrunnar. Hún hefur að geyma innbyggðar bremsur og tilhneigingar til að rækta mannleg og félagsleg gildi.
Meistaratalan gengur reyndar lengra í þessa áttina. Á meðan tvisturinn ræktar vináttu og samband tveggja einstaklinga eða takmarkaðs hóps, hefur 22/4 metnað til að byggja upp félagslega starfsemi sem gagnast öllu samfélaginu og 222 stuðar jafnvel að stærri uppbyggingu. 2 felur í sér vissa mýkt og þörf fyrir öryggi, í andstöðu við áhættusækni og dirfsku ássins og áttunnar, sem og harðra hugsjónatalna eins og 5 og 7.
Kannski var það engin tilviljun að útrásarvíkingarnir skyldu vera með slíkar tölur á meðan burðarstólparnir í núverandi ríkisstjórn, Jóhanna og Steingrímur skyldu vera með fjölskyldu- og samfélagsvænni tölur, eins og 2 og 6, en Steingrímur J. er einmitt með áberandi tvist..
Sjá allt um tölurnar á: www.numerologylafleur.com Og allt um fræga fólkið í bókinni: Reiknaðuþig út - Númeralógía I-II.
