Hugsjónir - Tölur!

Hugsjónir - Tölur!

Benedikt S. Lafleur er talnaspekingur, listamaður, sjóbaðsfíkill og útgefandi. Hann rýnir og les í tölur dagsins en þeim sem hafa áhuga á greiningu út frá fæðingardegi og öðru slíku er bent á að senda honum tölupóst á lafleur@simnet.is. Þá heldur Benedikt út vefsíðunni numerologylafleur.com.

  • Sögulegt tækifæri í íslenskri pólitík!

    29. apríl 2013

    Sögulegt tækifæri Samfylkingar úr sögunni til að verða stærtsi flokkur landsins og sameina þjóðina. Kannski til langframa. Einstrengningsleg og ótímabær afstaða Samfylkingar gagnvart aðild Íslands að ESB og samskiptaleysi og úrræðaleysi gagnvart brýnustu vandamálum þjóðarinnar urðu henni að falli. Nú er þetta tækifæri einkum í höndum Framsóknarflokks. Með því að teygja sig þverpólitískt bæði til hægri og vinstri með áherslu fyrst á heimilin og svo taka upp umhverfisvænni og lýðræðislegri stefnumál getur hann orðið stærsti flokkur Íslands. Lýðræðisöflin klúðrudu þessu tækifæri núna vegna lítils tíma, tilvisarkreppu og smákóngatilhneiginga sem gætu kvarnast af með tímanum... Sjálfstæðisflokkurinn á langt í land með að eygja slíka möguleika og þarf bæði að endurskoða stefnu sína og liðsafla í krafti meiri hreinsunar.

    Skrifa athugasemd

  • NÚ ÞARF ÉG AÐ SKAMMA YKKUR ÖLL!

    9. apríl 2013

    Eftir annars frábært viðtal við Andreu Ólafsdóttur, oddvita Dögunar í suðurkjördæmi, þar sem hún viðurkenndi að upp úr samstarfi við Lýðræðisvaktina hefði slitnað vegna ágreinings um afnám verðbtryggingar reyndist grunur minn á eftirfarandi rökum reistur: Allir þeir smáflokkar sem nú bjoða sig fram hafa vegna einstrengningshátts og barnaskaps misst af sögulegu tækifæri til að fylkja liði undir einn hatt, sem hefði getað notið margfalds fylgis og náð langt upp í stærð Sjálfstæðisflokks og þannig orðið raunhæfur og álitlegur kostur með Framsókn i næsturíkisstjorn. Allir þessir flokkar sem einn hefðu auðveldlega getað jafnað ágreining sinn með því að vísa honum einfaldlega til þjóðarinnar, enda hafa þeir allir hann ofarlega á stefnu sinni aukið vægi þjóðaratkvæðagreiðslna. Þetta á jafnt við um afdrif aðildarviðræðna við ESB sem afnám verðtryggingar svo dæmi eru tekin. Oddviar þessara flokka og meðlimir verða að læra aðb sýna meiri pólitískan þroska og liprari samskiptatækni ef þeir vilja ná arangri og hafa fælt ýmsa áhugasama frá með þessum mistökum, sem er miður. Vonandi tekst það eftir lexíu þessara kosninga!

    Skrifa athugasemd

  • ÁRIÐ 2013 - ár umbreytinganna!

    31. desember 2012

    2013 er ár umbreytinga og þróunar.

    Talan þrettán er mjög krefjandi tala og summa ársins, tallan sex, felur í sér skyldur og ábyrgð. Fyrir þá sem vilja fljúga frjálsir getur árið því borið með sér þversagnafullt erindi því bæði 1 og 3 í tölunni 13 eru tölur eldhugans sem lætur fátt stöðva sig, síst hina mjúku og skylduræknu sexu. Það er aðeins í gegnum summutölu 13, hinn vinnusama fjarka, sem persónuleiki næsta árs kemst hamingjusamur í land, í krafti mikillar vinnu og eljusemi, en einnig áræðni og frumkvæði ofurhugans sem hefur um leið fæturna á jörðinni og axlar ábyrgð gjörða sinna. Hjá þeim sem gæta þess að staðna ekki og taka örlògin í sínar hendur af miklum þrótti gæti árið 2013 orðið mikið happaár!

    Skrifa athugasemd

  • SUNDIÐ SLÆR Í GEGN!

    19. október 2012

    Sundið, ný kvikmynd eftir Jón Karlsson sló rækilega í gegn á frumsýningrdag!

    350 manns klöppuðu henni, leikstjóra og öðrun sem komu að myndinni lof í lófa
    lengi eftir að myndinni lauk. Margir hafa áttað sig hvaða þýðingu myndin hefur,
    bæði fyrir þróun kvikmynda hėr á landi, en þó einkum sundiðkun Íslendinga og
    ótvírætt forvarnargildi sunds og sjósundsiðkunar í heilbrigðismáum.

    Stjórnmálamenn ættu að sjá sóma sinn í að sjá myndina og efla forvarnarstarf
    í raun og veru í stað þess að eltast við ytri umgjörð heilbrigðisbákns sem þenst
    stöðugt út án þess að við fáum hönd við reist!

    Skrifa athugasemd

  • Frá árinu 1880 til 1990 drukknuðu 5354 Íslendingar!

    14. október 2012

     


    SUNDIÐ


     


    heimildarmynd eftir Jón Karl Helgason


     


    Frumsýnd í Bíó Paradís 18.okt. 2012

    Tímamótamynd í fullri lengd um sögu sundsins á Íslandi, sjósundafrek fjögurra afreksmanna sem reyna við Ermarsundið í bland við sviðsett söguleg sund frá landnámstíð og sögulega viðburði í sögu sundíþróttar hjá þjóð sem á allt sitt undir hafinu...


     


    Spennandi saga um æsilega keppni Benediktanna tveggja, Lafleur útgefanda og listamanns og Benna bakara sem eru staðráðnir að verða fyrstir til að synda Ermarsundið. Eyjólfur Jónsson sjósundskappi og lögregluþjónn reyndi þrisvar og Árni Árnason framkvæmdastjóri einu sinni. Hver verður fyrstur til að synda þetta erfiðasta sund í heimi?


     


    Í bland við hina æsispennandi glímu við Ermarsundið á milli Dover og Calais tvinnar myndin saman ódauðlegum myndskeiðum af sögulegum sundum og viðburðum þjóðar sem á allt sitt undir öryggi hafsins. Rakin er sundkunnáttusaga Íslendinga sem hafa alið af sér stórkostlega ástríðu fyrir sundíþróttinni og sjósundáhuga þúsundir Íslendinga.


     


    Þegar landnámsmenn komu til Íslands voru þeir allir flugsyndir. Seinni kynslóðir hættu að kenna börnum sínum að synda þegar deyfðin kom yfir þjóðina eins og Jónas Hallgrímsson segir, dó þá sundkunnáttan út.


     


    Fjölnismenn gefa út fyrsta "íþróttabæklinginn" árið 1843: Sundreglur.
    Þar ritar Jónas Hallgrímsson í formála:


     


    "Í byrjun 19. aldar þegar Íslendingar töldu fimmtíu þúsund kunnu aðeins
    sex menn á öllu landinu að synda."


     


    Frá árinu 1880 til 1990 drukknuðu 5354 Íslendingar, margir vegna þess
    að þeir kunnu ekki að synda.


     


    Hægt og rólega óx sundkunnátta Íslendinga á ný og í myndinni er sú saga einnig rakin, allt til nútímans.


     


    Tímamótamynd eftir Jón Karl Helgason, hreint afrek á sviði heimildargerðar og algjört konfekt fyrir augað. Mynd sem á brýnt og mikilvægt erindi til íslensku þjóðarinnar og út í hinn stóra heim.


     


     


     


    Nánari upplýsingar er að finna á:


     


    www.facebook.com/Ermarsund


     

    Skrifa athugasemd