Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Elsku Kim Jong-il

3. ágúst 2012 › 17:00

Svarthöfði var alltaf mikill aðdáandi Kim Jong-il. Sonur hans á enn eftir að sanna sig en það var eitthvað í fasi hins alþýðulega leiðtoga sem heillaði Svarthöfða. Það var sorgardagur þegar hann lést. 


Að eiga sterkan leiðtoga að er ómetanlegt, ógnvekjandi vafinn hverfur og þjóðin sýnir samstöðu og samhug. „Sameinuð stöndum vér, en sundruð föllum vér,“ eins og sagt er. Sundrung er náttúrulega veikleikamerki. Í ríki Kim Jong-il var ekki sundrung. Meira að segja fuglarnir hörmuðu dauða hans. Jörðin sjálf hrærðist þegar hinn mikli leiðtogi fæddist! 


Íslendingar eru mjög lélegir í að styðja leiðtoga sína. Kim var „ástkæri leiðtoginn“, „framúrskarandi leiðtoginn“ og var meira að segja titlaður leiðtogi til eilífðarnóns eftir að hann dó! Það er ættjarðarást með rentu.  


Svarthöfði hefur velt því fyrir sér hvers vegna Íslendingar séu svona miklir afturhaldskommar í þessum efnum. Eina skýringin er þessi forljóta sundrung og óeining sem einkennir okkur. Óskammfeilnir bloggarar bera ekki virðingu fyrir æðstu mönnum og þeirra yfirburðaskynsemi. Þeir telja sig vita betur – og rugla almenning með áróðrinum sínum. 


Sumir blaðamenn eru líka litlu skárri, þeir virðast ekki vita að starf þeirra felist í að hafa vit fyrir almenningi og auka ást þeirra á leiðtoganum. Reyndar er Morgunblaðið fremst allra íslenskra blaða, enda skín sannleikurinn skýr að einum réttum leiðtoga þar og lesandinn ruglast ekki óþarflega í ríminu. Þar má líka lesa skemmtilegar fréttir um tombólur. 


Það er mönnum fyrir bestu að elska foringjann. Menn eru hamingjusamastir þegar þeir vita að einhver heldur yfir þeim verndarhendi og þeir þurfa ekki að strita of mikið andlega. Menn trúa líka á leiðtogann því það glæðir líf þeirra hamingju og tilgangi. Það er til dæmis sannað að það gerir mann sælli að brosa, meira að segja þó maður sé í fýlu og þurfi að þvinga fram brosið. Það sama á við leiðtogatrúna. Þó hún sé þvinguð, þá er hún samt betri en fýld gagnrýni sem getur ekki verið runnin undan öðru en öfund. 


Svarthöfði segir því, elskum leiðtogann okkar, jafnvel þótt að hann virðist gallaður. Það eru allir eitthvað gallaðir hvort  sem er. Meira að segja Guð sjálfur getur verið hefnigjarn og vægðarlaus. 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.