Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Sex sannanir þess að kreppan sé búin

9. júlí 2012 › 16:37

1. Hópuppsagnir eru framkvæmdar af hugsjónaástæðum, ekki vegna þess að fjárhagurinn sé slæmur. 


Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sagði upp 41 starfsmanni í síðustu viku, en á sama tíma borguðu eigendurnir sér 850 milljónir króna í arð. Ástæðan var að eigendurnir vildu mótmæla veiðigjaldi ríkisstjórnarinnar, sem þeir segja að geri veiðarnar óarðbærar (!?). 


 


2. Hver Íslendingur skuldar að meðaltali 300 þúsund í yfirdrátt. Yfirdráttur landsmanna er orðinn meiri en árið 2008. Árið 2009 voru yfirdráttarlán 48 milljarðar, en eru nú strax komin í 74 milljarða. Í alvöru góðæri safnar fólk neysluskuldum. Það er gott fyrir bankana, og það sem er gott fyrir banka er gott fyrir okkur hin.


 


3. Ísbjörn kemur til landsins og hittir fyrst fyrir ítalska ferðamenn, en ekki Íslendinga. 


Í fyrra komu 565 þúsund ferðamenn til Íslands en núna er búist við 650 þúsund ferðamönnum á árinu. Blússandi uppgangur er því í þessum stóra iðnaði. Ísbjörninn reyndi ekki einu sinni að éta ítölsku ferðamennina, því hann var svo blístrandi mettur í allsnægtum Íslands.


 


4. Fjölmiðlafyrirtækið 365 er komið upp í tæplega 6 milljarða króna viðskiptavild. Næstum 60% eigna fyrirtækisins eru viðskiptavild. Þetta er eins og í gamla góða góðærinu.


 


5. Sturla Jónsson er hættur að flauta og búinn að semja við bankann.


 


6. Síðustu mótmælin á Íslandi voru gegn listaverki á Austurvelli eftir Santiago Sierra – sem er óður til mótmæla.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.