Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Besta land í heimi

24. júní 2012 › 17:00

Undanfarin ár hafa margir Íslendingar flutt til Noregs og fleiri draumalanda. 40 prósent Íslendinga hafa íhugað að flytja úr landi síðasta árið eða svo, samkvæmt könnun í nóvember í fyrra. 


Stór hluti þjóðarinnar trúir því að grasið sé grænna hinum megin við hafið. En það er tálsýn. Ísland er nefnilega besta land í heimi. Hér eru 13 ástæður:


1. Þótt þú hafir dyrnar að sumarbústaðnum þínum opnar þarftu ekki að óttast að skógarbjörn komi í heimsókn.


2. Þótt þú leggist í grasið eða gangir í skóginum þarftu ekki að óttast að „skógarmítill“ bíti þig og bori sig inn í líkama þinn, og beri með sér „lyme-disease“ sem veldur síþreytu.


3. Þegar kjarnorkustríðið kemur mun enginn nenna að sprengja Ísland.


4.  Eitt mesta vandamál mannkyns, gróðurhúsaáhrifin, hljóma eins og draumur í dós á Íslandi.


5. Hættulegasta dýr Íslands er geitungurinn.


6. Íslenska mýflugan er eins og kelinn kettlingur í samanburði við moskítóflugur annars staðar.


7. Prumpulyktin af heita vatninu hér er ekki vegna saurmengunar.


8. Alvarlegasta hryðjuverkaárásin á Ísland og íslenska menningu var sjónvarpsþátturinn Nonni sprengja á Skjá Einum árið 1999.


9. Síðasta stríð á Íslandi var fyrir átta öldum. Það voru notuð bitlaus sverð og grjót.


10. Þegar Íslendingar lentu í átökum við erlenda stórþjóð, í þorskastríðinu, þóttum við svo litlir og krúttlegir að þeir vildu ekki skjóta á okkur.


11. Það þarf ekki nema 14 gráðu hita til að búa til bongóblíðu á Íslandi.


12. Forsætisráðherrann býr í fjölbýlishúsi, eins og hinir.


13. Ísland er krúttland. Mesta deilan í þjóðfélaginu snýst um hver sé besta sameiningartáknið.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.