Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

„Ég er enginn alki“

13. júní 2012 › 13:19

Svarthöfði á það til að fá sér í glas þegar þannig stendur á. Þetta er þó ekkert vandamál enda er drykkjan algjörlega einskorðuð við kvöldin og um helgar. Og þegar þannig stendur á eru bílar heimilisins óhreyfðir. Þó er sú undantekning á að þegar einungis er um að ræða rauðvín sest Svarthöfði stundum undir stýri og ekur styttri vegalengdir. Þetta hefur yfirleitt bjargast ágætlega ef undan er skilinn einn ljósastaur og eitt umferðarskilti.


Svarthöfði er andstæða Sumarliða, vinar síns, sem á í stöðugum erjum við nágranna sína þegar hann er drukkinn. Þið munið að hann er þessi sem smíðar skútu, skerpir skauta og segir öllum að halda kjafti. Þegar Sumarliði er mjög fullur syngur hann hárri raust: „Ég er enginn alki“. Þarna eru vinirnir sammála um eigið ágæti. Hvorugur er alki.


Það vill brenna við hjá þingmönnum að þeir drekki rauðvín á ferðum sínum um kjördæmið eða annarsstaðar í vinnutímanum. Freistingarnar eru við hvert fótmál í þessu erfiða starfi sem slítur út sál og líkama á mettíma. Þessu kynntist Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður á sínum tíma þegar hann drakk yfir sig og var handtekinn og sviptur. Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður lenti innan um gríðarlegt magn af rauðvíni á meðan þingfundur stóð. Hann hélt þá ræðu þar sló í gegn um víða veröld eftir að hún fór á Youtube. Á einu augabragði, einu augabragði, varð þingmaðurinn heimsþekktur á Íslandi fyrir afar sérstæða framgöngu í ræðustól.


Annar stjórnmálamaður sem lenti í svipuðum ógöngum var Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna. Hann datt í rauðvínssvelg og ók síðan af stað. Lögreglan í Hafnarfirði sá ekki brandarann í aksturslaginu og tók af honum skírteinið. Guðmundur brást við örlögum sínum af mikilli karlmennsku og sendi út yfirlýsingu þar sem hann þakkaði lögreglunni árveknina og lofaði betrun. En hann er auðvitað ekki alki.


Sá sem síðast lenti í ógöngum vegna áfengisneyslu og skilningsleysis yfirvalda er Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Höskuldur er annálað prúðmenni sem hvergi má vamm sitt vita. Miklu magni af rauðvíni var otað að honum með þeim afleiðingum að hann missti dálítið af dómgreind sinni. Þegar svo lögreglan stöðvaði þingmanninn kom í ljós að áfengismagnið var langt yfir mörkum. Líklega var um að ræða gallaðan áfengismæli en það tjóir lítt að deila við dómarann. Höskuldur prúði var sviptur ökuleyfi og verður nú að hjóla eða ganga eftir atvikum. Hann lýsti því í samtali við DV að hann væru miður sín vegna málsins og stöðu þess. Hann man lítið frá atvikum og alls ekki hve mikið rauðvín hann drakk.


„Ég man ekki hvað rauðvínsglösin voru mörg en þessi mistök eru ekki í ætt við það sem þeir sem eiga við raunveruleg drykkjuvandamál að stríða glíma við,“ sagði Höskuldur við DV skömmu eftir atvikið. Og hann áréttaði að hann þekkti vel til alkóhólisma  sem vinir hans hefðu háð blóðuga baráttu vegna. Höskuldur, Svarthöfði og Sumarliði eru allir á sama báti og gætu þess vegna sungið saman dægurlagaperluna góðu. „Ég er enginn alki“.


Því skal þó haldið til haga að Höskuldur hefur fengið bakþanka vegna málsins. Hann mun ætla að hitta frægasta áfengisráðgjafa Íslands til að bera undir hann spurninguna: „Er ég kannski alki“.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.