ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 3m/s SSW
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Gylfzilla kemur!

22:07 › 9. febrúar 2012
Gylfzilla étur eignir fólks!

Fólk á Íslandi er ringlaðra en fólk í öðrum löndum þegar kemur að þjóðfélagsmálum. En það er ekki fólkinu sjálfu að kenna. Hér er gott dæmi.


Þegar sannleikurinn um lífeyrissjóðina hafði loksins verið rannsakaður og ítarlegar niðurstöður birtar í skýrslu um málið kom fram í fréttum að sjóðirnir hefðu tapað 480 milljörðum króna. Næstu fréttir voru að lífeyrissjóðirnir sögðu að tapið hefði raunverulega verið hundrað milljörðum minna. Því næst steig fram Gylfi Arnbjörnsson, fulltrúi verkalýðsins á Íslandi, og sagði að tapið hefði raunverulega bara verið átta milljarðar. Þannig gat tæplega 500 milljara króna tap íslensks almennings gufað upp á þremur dögum í þjóðfélagsumræðunni.


Það er ekki skrítið að fólk sé ringlað. Það væri skrítið ef fólk væri ekki ringlað. En hér er ástæðan fyrir því að lífeyrissjóðirnir töpuðu bæði 480 milljörðum og svo líka bara átta milljörðum: Krónan. Þegar menn vilja láta sjálfan sig líta betur út geta þeir alltaf borið saman upphæðir án þess að gera ráð fyrir verðbólgu. Krónan er nefnilega ekki vísindalegur mælikvarði. Hún verður fyrir svokallaðri verðbólgu og breytist stöðugt. Ein króna árið 1920 er virði tvö þúsund króna árið 2012. Og þegar 480 milljarða eignir lífeyrissjóðanna gufuðu upp, hækkuðu erlendu eignirnar í krónum talið. En þetta er eins og að segja að flugvélin hafi ekki raunverulega brotlent, því ef fall hennar er talið í metrum en ekki fetum er hún ennþá fljúgandi.


Ef metrakerfið væri eins og krónan gæti einn metri árið 2007 verið 1,5 metrar árið 2012. Þá gæti Gylfi Arnbjörnsson mælt mittismálið í 2007-metrum og hæð sína og upphandleggi í 2012-metrum. Og slegið í gegn á stefnumótasíðu. Innan nokkurra ára væri Gylfi orðinn ígildi The Hulk, eða Gulk. Það er bara byrjunnin. Með krónunni getur hann auðveldlega magnað sig upp í tvöþúsundfalda stærð sína. Ef við trúum honum áfram endar hann sem Gylf-zilla og leggur heimsmynd okkar algerlega í rúst. 


Þetta verðbólgna skrímsli mun éta sneiðar af heimilunum okkar og rústa bílum, þannig á endanum eigum við ekkert í húsinu okkar og engan bíl. En það er svo sem búið og gert. Og samt vill fólk krónuna. Þótt hún opni gáttir vítis.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?