ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Hvíta ruslið og Harpa

15:30 › 9. maí 2011

Það gat nú verið að menningarlegar eyðimerkur landsins kvörtuðu yfir flottasta tónlistarhúsi norðan Alpafjalla. 

Þetta fólk lætur eins og aldrei hafi verið byggð fyrir það Kringlan. Og aldrei hafi verið byggð Smáralind, eitt glæsilegasta reðurtákn heims. Hvítt rusl hvar sem er í heiminum hefði prísað sig sælt fyrir að vera aðnjótandi slíks byggingarlegs óðs. Meðan áskrifendur að sinfóníutónleikum seðja smekkvísi sína í Hörpunni getur hitt fólkið auðveldlega farið í Kringlubíó og Smárabíó til að upplifa eitthvað sem hæfir þess skynjunarstigi.

Vissulega mætti reka fjöldann allan af leikskólum og spítala fyrir peninginn sem skattgreiðendur eru látnir borga í Hörpu. En yfirburðarsmekkvísi verður ekki grædd í fólk á spítala. Skynjun á fínustu blæbrigðum nærgætnustu tilbrigða tónlistarinnar er ekki kennd á leikskólum. Þessu þroskastigi, sem áskrifendur sinfóníuhljómsveitarinnar hafa öðlast, verður aðeins náð fram með áratuga snertingu við tæra hámenningu. 

Harpa er ómissandi vettvangur fyrir hámörkun vitsmuna, skilnings og skynjunar. Þeir óbreyttu landsmenn sem sjá ekki hvernig þetta fjölnota elítuhús snertir þá sjálfa ættu að athuga að þeir deila dýrðinni með áskrifendum sinfóníuhljómsveitarinnar, sem hafa náð æðsta stigi skynjunar og skilnings. Við erum nefnilega öll Íslendingar. Því fleiri Íslendingar sem ná hámarksárangri sem þessum, þess merkilegra er að verða Íslendingur. Ekki kvörtum við þegar handboltalandsliðið hámarkar yfirburði sína? Nei, við fögnum. Og samt þarf lítið sem ekkert að hugsa til að henda bolta. Á sama hátt ætti almenningur að fagna, þegar heldri borgarar uppfylla platónska frummynd fullkomnunar mannsins með hámörkun skynjunar sinnar í Hörpu.

Rannsóknir sýna að það er hagkvæmt fyrir hvítt rusl að niðurgreiða sinfóníutónleika fína fólksins. Skapandi greinar velta 189 milljörðum á ári. Svo fara 10–28 milljónir í gluggaþvott. Gluggaþvottamaðurinn á Hörpu fær laun sem hann notar svo til að fara í Smárabíó og skapar störf fyrir poppsölumenn. Skapandi greinar eru burðarstólpi atvinnulífsins. En sumt fólk skilur það ekki. Alveg eins og sumir skynja ekki það sem gerist í Hörpu. Því það er ekki nóg að hlusta. Það þarf að heyra. Hvítt rusl hlustar kannski, en það heyrir ekki í Hörpu. 

Hvíta ruslið þjónar engu að síður tilgangi þegar kemur að Hörpu. Það borgar skatta til þess að niðurgreiða sinfóníuhljómsveitina og Hörpu, svo andlegir vitar þessa lands geti skinið skært, öllum öðrum til leiðsagnar. Á sama hátt dregur blómið næringu úr moldinni og drullunni til að geta blómstrað í allri sinni fegurð og gætt veröldina fagurfræðilegri merkingu og inntaki. Hvað væri veröldin án blóma, gæti maður spurt? En um leið verður að spyrja, hvar væri blómin án moldardrullu? Þetta er allt samvirkt. Við höfum öll hlutverk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?