Aðstandendur fjölnota elítuhússins við Reykjavíkurhöfn neituðu á fimmtudag að gefa upp hverjum væri boðið á opnunartónleika sinfóníuhljómsveitarinnar í Hörpu.
„Við getum ekki gefið upp einstaka nöfn eins og þú hlýtur að skilja,“ sagði Þórunn Sigurðardóttir, hæstvirtur stjórnarformaður rekstrarfélagsins Ago, við blaðamann hjá Pressunni, sem gerðist svo kjánalegur að spyrja.
Þetta er mjög skynsamlegt viðhorf hjá Þórunni og jafnframt óþarft hjá blaðamanni að spyrja. Elíta landsins nýtur að sjálfsögðu persónuverndar. Þessi persónuvernd er ekki aðeins til að veita Hörpuelítunni frið, heldur til að vernda pöpulinn frá sjálfum sér. Upplýsingar um elítuna æsa bara upp óeðli hjá almúganum, hnýsni og öfund. Sjáið bara hvernig fólk lætur þegar skattaupplýsingar eru birtar. Nei, venjulegu fólki líður bara verr ef það veit. Það er vont fyrir það að vita og því er rangt að láta það vita.
Við getum þakkað fyrir það að í þetta sinn ætlar Ríkisútvarpið, sem við borgum fyrir, að gera okkur þann greiða að sjónvarpa tónleikum sinfóníuhljómsveitarinnar, sem við borgum fyrir, úr nýja tónlistarhúsinu Hörpu, sem við borgum fyrir.
Auðvitað rúmar Harpa ekki alla. Hún rúmar rétt helstu mektarmenni landsins, besta eitt prósentið eða svo. „Þetta eru ákveðnir flokkar fólks í samfélaginu sem eru boðnir,“ sagði Pétur J. Eiríksson, formaður nefndar um gestalista Hörpu, við DV.is. Svona er þetta. Íslendingar ætla aldrei að átta sig á því að sumir eru merkilegri en aðrir. Þeir sem eru síður merkilegir fá að borga fyrir þá sem eru meira merkilegir.
Stjórnendum helstu fjölmiðla var auðvitað boðið. Annað væri heimskulegt. Annars færu þeir bara að fjalla um hverjum væri boðið. Davíð Oddsson hlýtur til dæmis boð. Björgólfur Guðmundsson líka. Og svo merkilegustu þingmennirnir.
Þeir sem kvarta verða eflaust sakaðir um neikvæðni. Þeim verður sagt að íslenska þjóðin eigi að standa saman og sýna jákvæðni, sérstaklega þar sem Harpa er svo glæsilegt hús. Í lauslegri þýðingu: Þið almúginn eigið að brosa á meðan mektarmennin standa á herðum ykkar. Aðeins þannig getið þið orðið hluti af sýningunni. Brosið!
Blogg
Hörpuelítan
12:06 › 13. maí 2011
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 
