Árið 1996 var aðeins fyrir fjórtán árum en það virðist hafa verið fornöld engu að síður. Fórnarlömb kynferðisbrota biskups voru hrakin og smáð í stað þess að vera studd. Þetta hljómar meira eins og Afganistan en Ísland. Þetta kennir okkur að stundum finnst okkur við vera komin lengra en við erum í raun og veru.
Árið 1989 var kvikmyndin Aftur til framtíðar 2 frumsýnd. Í henni ferðaðist Michael J. Fox til ársins 2015 sem kemur eftir fimm ár. Samkvæmt framtíðarsýn myndarinnar gátu bílar flogið, hjólabretti svifið og pítsum var stungið inn í ofn sem stækkaði þær margfalt. Jakkar þurrkuðu sig sjálfir og svo framvegis. Þetta rættist ekki en í staðinn er til internet, farsímar, myndsímtöl, gps-tæki og fartölvur. Til eru fljúgandi smábílar en þeir þykja of dýrir og út í hött, rétt eins og Segway og iPad.
Eftir 14 ár, árið 2024, verður margt breytt. Allir verða með staðsetningartæki á sér. Þannig verður auðvelt að finna fólk. Sífellt fleiri dvelja í sýndarveruleika þar sem þeir öðlast gervihamingju. Fólk lifir tvöföldu lífi. Einhleypum fjölgar, börnum fækkar.
Bankaleynd auðmanna og fyrirtækja verður álitin hið undarlegasta skálkaskjól fornaldar, óvinur hins upplýsta, frjálsa markaðar. Fæstir munu nota einkabíl til samgangna innanbæjar þar sem vitundarvakning verður orðin um hagkvæmni almenningssamgangna og stjórnmálamenn leggja peninga í þær. Í framtíðinni verður litið á Reykjavík nútímans, með allar sínar ógeðfelldu umferðaræðar, eins og við lítum á mengaðar borgir Bretlands í iðnbyltingunni. Það verður í auknum mæli álitið heimskulegt að hafa eytt stórfé í einkabíl í stað þess að stunda hreyfingu og spara pening. Engir bensínbílar verða til heldur aðeins rafmagnsbílar. Fólksflutningar til borgarinnar snúast við því sífellt fleiri kjósa að búa úti á landi í stað fjölbýlishúsahverfa höfuðborgarsvæðisins.
Líkamsræktarstöðvar munu að stórum hluta heyra sögunni til þegar fólk áttar sig á því að það getur hreyft sig hversdagslega og hlaupið úti í stað þess að borga stórfé fyrir að keyra að líkamsræktarstöð til þess að hlaupa á bretti og lyfta með einum vöðva í einu. Engin sólbaðsstofa verður til árið 2024 og engin vídeóleiga. Öllum að óvörum verða til bækur, dagblöð og bíó. Dagblöðin verða hins vegar líkari nettengdum dúkum en blöðum. Kirkjum landsins verður breytt í félagsmiðstöðvar. Í stað presta verða heimspeki- og sálfræðimenntaðir starfsmenn fengnir til að hjálpa fólki að leita hamingjunnar og bregðast við áföllum. Og fangar verða ekki vistaðir í fangelsum lengur. Hinir brotlegu verða þess í stað sítengdir staðsetningartæki og upptökutæki sem fylgist nákvæmlega með öllum þeirra hreyfingum. Þegar þeir brjóta af sér verður það birt á netinu og þá verður nýtt mikilvægasta uppfinning nánustu framtíðar, „dislike“-takkinn á Facebook.





