Svarthöfði hefur alla tíð haft varann á gagnvart ókunnugum. Móðir hans kenndi honum í æsku að tala ekki við ókunnuga, því manni er ókunnugt um hvað ókunnugir geta gripið til ráðs. Svarthöfði þekkir Íslendinga, enda býr hann á landinu. En útlendinga þekkir hann verr og varast þá.
Hefur Svarthöfði heyrt að í Evrópu sé bændum leyft að mjólka eins mikið og þeir vilja. Mjólk flæðir um víðan völl og veldur mjólkuróþoli í álfunni allri. Svo illa þola þeir mjólkina að þeir þamba skattlaust rauðvínið út í eitt á milli þess sem þeir kaupa bjór í matvöruverslunum. Í Evrópu eru allir ölvaðir.
Suður í Evrópu mun vera svo margt um manninn að innflytjendur troða sér ofan á þá sem búa þar fyrir og standa á herðum þeirra allan liðlangan daginn. Svo sofa þeir ofan á þeim og konunum þeirra vegna plássleysis.
Heyrt hefur Svarthöfði að Evrópubúar þrái fátt heitar en lífsrýmið á Íslandi. Því sammæltust þeir um að rægja íslensku bankana og fella þá með árásum svo þeir gætu narrað þjóðina til lags við sig í gegnum Evrópusambandið.
Heimildir Svarthöfða herma að í Evrópu séu áform um að stráfella íslenska sauðfjárstofninn og nýta í keböbb. Þar þrífst ekki sauðfé, nema geislavirkt. Þar eru skógareldar á hverju strái.
Frændi Svarthöfða ferðaðist til Evrópu og heyrðist Svarthöfða á áreiðanlegum heimildum hans að ætlun Evrópumanna væri að skrá unga Íslendinga í sameiginlegan Evrópuher sem þenja ætti út landamæri Evrópu til austurs. Eða er tilviljun að bæði Ísrael og Aserbaídsjan séu þátttakendur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarsstöðva, þrátt fyrir að teljast (enn) asísk lönd?
Sá grunur sækir að Svarthöfða að hið sama gæti hent okkur og indjána Norður-Ameríku. Þeir töpuðu landinu en sátu uppi með glerperlur og eldvatn, nánast óskattlagt. Og kýrnar munu mjólka stjórnlaust og bændur svelta. Frónverjum verður þröngvað til að mæla á frönsku. „Je ne sais quoi“ í sí og æ!
Svarthöfði treystir engum betur til að halda um stjórnartaumana en Ögmundi Jónassyni, Ásmundi Einari Daðasyni og Jóni Bjarnasyni. Þeir skynja hættuna sem Íslendingum stafar af ásælni, öfund og ágirnd Evrópubúa.
Vill Svarthöfði að allir Íslendingar verði að bera alíslensk nöfn sem eru samþykkt af íslenska ríkinu. Öllum útlendingum, sem lánast að verða Íslendingar, skal gert að taka upp alíslenskt nafn til aðgreiningar frá hinum. Auk þess leggur Svarthöfði til skattlagningu á innflutt gjafasæði. Mun meiri gæði eru í innlendu sæði.
Blogg
Varist Evrópu!
08:42 › 26. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
