Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, er einstakur maður og vel gerður í hvívetna. Hann veit sem er að oft má satt kyrrt liggja. Þjáningin liggur í því að rifja upp mannvonsku og fjalla um hana. Miklu eðlilegra og betra er að leyfa þögninni að leika um óhæfuverk sem hvort sem er verða ekki afturkölluð.
Karl er leiðtogi íslensku þjóðkirkjunnar sem er lútersk og þar af leiðandi væntanlega frjálslyndari en sú kaþólska. Og það er dæmi um farsæla stjórn Karls að kynferðisbrotamál innan þjóðkirkjunnar eru vandlega varðveitt í hinum ýmsu skúffum á Biskupsstofu. Þetta á sérstaklega við um þau mál sem snúa að prestum og yfirmönnum þeirra. Allt annað er uppi á teningnum hjá kaþólsku kirkjunni úti í hinum stóra heimi. Þar hafa komið upp skelfileg mál þar sem kirkjunnar þjónar hafa látið barnagirnd stjórna gjörðum sínum. Blindaðir af heimsku hafa söfnuðir kaþólsku kirkjunnar með dyggri aðstoð fjölmiðla farið í naflaskoðun og síðan uppgjör. Níðingar hafa verið gerðir opinberir og þeir settir af og jafnvel leiddir fyrir dóm.
Á Íslandi er meiri friður í kringum mál af þessum toga. Karl veit sem er að opinberun syndara veldur ólgu og því einfaldast að þegja málin í hel. Það verður hvort eð er engu bjargað úr því sem komið er. Og langflestir fjölmiðlar á landinu eru sömu skoðunar. Sumt má ekki koma upp á yfirborðið. Þetta bandalag biskups og fjölmiðla hefur skilað þeim árangri að fjöldi óþægilegra mála hefur fengið að hvíla í friði.
En nú er friðurinn slitinn í sundur. Leyndarbiskupinn Karl þarf að verjast fólki sem vill uppgjör á því sem liðið er. Hirðin á Biskupsstofu hefur slegið skjaldborg um biskup sinn og aðstoðað hann í hvívetna við að þagga niður mál. Bréfum til hins opinbera kirkjuráðs sem innihalda ávirðingar á þjóna kirkjunnar og vísbendingar um glæpi er haldið leyndum fyrir fjölmiðlum.
Biskupsmenn vita sem er að það veldur bara óróa að rifja upp fortíð sem best er að gleymist. Þeir vilja horfa fram á við og gleyma hinu óþægilega. Þannig getur þjóðkirkjan haldið áfram að boða eitt en framkvæma annað. Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum og svo framvegis. Satt má kyrrt liggja. Og það er fullkomlega réttlætanlegt frá sjónarhóli yfirstjórnar kirkjunnar að ljúga til að verja heiður manna sem þjónað hafa af alúð en misstigið sig nokkrum sinnum á langri leið. Þetta veit Karl sem opinberlega veit eiginlega ekki neitt um það sem er að gerast innan hans eigin kirkju.
Blogg
Blessaður biskupinn
12:54 › 16. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
