Hvergi annars staðar en á Íslandi getur maður hitt morðingja í helgarleyfi nokkrum árum eftir að hann var dæmdur. Íslendingar eru þjóða uppteknastir af því að gæta hagsmuna þeirra sem fremja glæpI.
Íslenskur síbrotamaður með alþjóðlega reynslu og tólf ár að baki í íslenskum og dönskum fangelsum hafði einfaldlega þetta um mesta öryggisfangelsi Íslands að segja: „Litla-Hraun er algjört lúxushótel.“ Þegar fangarnir sjálfir eru farnir að kvarta yfir of miklum þægindum er eitthvað að.
Söngstjarnarn Kalli Bjarni lýsti því í viðtali við Séð&heyrt fyrir nokkrum misserum hvernig hann dundaði sér við að bæta golf-kunnáttu sína og skrifa barnabók eftir að hafa verið dæmdur fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Menn sem slá Íslandsmet í fíkniefnainnflutningi fá helgarleyfi úr fangelsinu og snúa ekki aftur. Áhyggjur lögreglunnar ná ekki lengra en svo að hún sendir ekki mynd af honum til fjölmiðla fyrr en daginn eftir að hann „týnist“.
Hugmyndin virðist vera að hafa fangelsin of þægileg til að menn geti hugsað sér að flýja. Alveg eins og reynt var að hafa nógu lítið eftirlit og rúmar reglur til þess að fjárglæframenn héldu áfram viðskiptum sínum hér á landi.
Íslensk réttvísi er algerlega öfugsnúin. Mótmælendur sem mótmæltu glæp ríkisstjórnarinnar gegn þjóðinni við Alþingishúsið hafa verið dregnir fyrir dóm. Maður sem grunaður er um að hafa tekið gögn um misferli útrásarvíkinga er hundeltur af lögreglu. Nuddarar sem bjóða „happy ending“ eru í sigti lögreglunnar. Mestu fjárglæframenn Íslands eru þeir sem fá mestu tækifærin og mestu afskriftirnar. Venjulegir, löghlýðnir borgarar þurfa þvert á móti að horfa upp á skuldirnar sínar snarhækka, en ekki afskrifast.
Þá er komið að stóru spurningunni á Ísland: Hvers vegna förum við betur með glæpona en löghlýðna?
Blogg
GOTT AÐ VERA GLÆPON
19:58 › 5. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
