ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

ÍKARUS OG ELDGOSIÐ

18:45 › 26. mars 2010

Á öldum áður báru Íslendingar virðingu fyrir hverfulleika lífsins. Þegar eldur kom upp úr jörðinni færðu þeir sig frá. Um helgina kom eldur upp úr jörðinni ofan á fjalli í alræmdu veðravíti. Í stað þess að forða sér flykktust nútíma-Íslendingarnir að. 

Eldgosið hafði rétt náð að skjóta upp kollinum, furðu lostnum vísindamönnum að óvörum, þegar eldfjallafræðingur reyndi að keyra upp að eldgosinu, en festi jeppann sinn í holu. Fréttamaður fann hann, því fréttamaðurinn ætlaði líka að keyra upp. Upp hófst heljarinnar kapphlaup fréttamanna, ævintýramanna og vísindamanna að verða fyrstir til að baða sig í bjarmanum af jarðeldinum.

„Öskustrókurinn, hann er yfir okkur,“ dæsti Kristján Már Unnarsson fréttamaður í viðtali við fréttastöðina sína. „Við erum í öskufalli, askan dynur á okkur hérna og snjórinn orðinn grár og víða svartir flekkir. Við höfum séð fyrr í morgun svona sprengingar koma af og til,“ hélt hann andstuttur áfram.

Þetta var ekki nýársbrenna, heldur eldgos sem hafði borið upp með býsna óskiljanlegum hætti, því lítil þekking er á gossvæðinu og mælarnir sýndu ekki að eldgosið væri hafið. Fréttamaðurinn lýsir hættunni vel;  hvernig öskunni af logandi gossúlum úr jörðinni rignir yfir hann og hvernig ófyrirsjáanlegar sprengingar verða með reglulegu millibili. Svo hnykkir hann karlmannlega út: „Við erum að meta stöðuna, hvað við gerum úr þessu en við reynum væntanlega að nálgast gosstöðvarnar frekar.“

Íkarus var metnaðargjarn maður í grískri goðafræði. Hann vaxaði á sig vængi og hóf sig til flugs. En á endanum óx honum metnaður um of og hann fór of nálægt sólinni. Vaxvængirnir brunnu og Íkarus hrapaði. Auðvitað var Íkarus aldrei til og hefði væntanlega ekki hrapað í þyngarleysi geimsins, en boðskapurinn er gamall, sannur og einfaldur. Ekki fara of nálægt eldinum.

Svarthöfði er þakklátur fréttamönnum sem ná góðum myndum af gosinu, en biður þá ekki um að leggja sjálfa sig í hættu. Gleymum því ekki að það kom gat á jörðina öllum að óvörum og eldur vellur upp úr! Í guðanna bænum haldið ykkur frá!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?