ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

BANNLAND

10:04 › 25. mars 2010

Svarthöfði iðar í skinninu yfir þeirri ákvörðun vinstrigrænna að banna nektardans, pókerauglýsingar, hollenskt flugfyrirtæki og unglingabrúnku. Nú er nefnilega tíminn til að uppræta allt illt í samfélaginu áður en sjálfstæðismenn komast aftur til valda.

Svarthöfði vill banna sígarettur sem fyrst. Fólk sem reykir verður veikt og lætur aðra borga fyrir sig. Að auki er óþefur af reykingum og þær lækka gengi krónunnar. Næst ætti að banna álverið í Straumsvík. Það mengar loftið fyrir Hafnfirðingum og er til ama þegar ferðamenn keyra þar fram hjá. Ferðamenn skapa gjaldeyristekjur og þeir vilja sjá náttúru, ekki iðnað. Arðurinn af álverinu fer í vasa útlendinga og auk þess er ál notað í gosdósir, engum til gagns. Enda er gos óhollt og gerir fólk of feitt, þannig að það veikist og Svarthöfði þarf að borga fyrir það.

Því fyrr sem ríkisstjórnin tæmir Hálslón og breytir Kárahnjúkavirkjun í minnisvarða um fallna náttúrufegurð, því betra. Gjörningurinn mun vekja heimsathygli. Hundrað manns á listamannalaunum munu í kjölfarið mála stífluna í öllum heimsins litum. Verkið getur heitið „Regnbogaást“ og verið tákngervingur fyrir umburðarlyndi gagnvart þeim sem eru öðruvísi.

Sælgæti er óhollt fyrir almenning. Vaxandi fjöldi barna er feitur og þetta er mesti faraldur samtímans. Því væri ábyrgðarleysi að hækka ekki verðið á sælgæti í þann flokk að alþýðan megni ekki að kaupa það, heldur einungis hinir auðugu sem engin eftirsjá er að. Lækka ber skatt á gúrkur á móti, þjóðinni til heilla. Með aukinni gúrkuneyslu og minnkandi sælgætisáti grennist þjóðin og kostnaður Svarthöfða við heilsugæslu minnkar. En aðalatriðið er að við berum ábyrgð hvert gagnvart öðru.

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi veldur mikilli mengun í andrúmsloftinu og ógnar mesta vistsvæði spóa í öllum heiminum, en á aursvæði Markarfljóts eru 62 spóapör á ferkílómetra. Svarthöfði vildi gjarnan banna eldgosið, en það er því miður ekki hægt á núverandi tæknistigi. Að lágmarki ætti að banna fólki og fréttamönnum að komast í sjónfæri við gosið vegna þeirrar hættu sem þeim stafar af því. Hvorki Kristján Már Unnarsson né Ómar Ragnarsson eru óhultir á svæðinu og okkur ber skylda til að tryggja öryggi borgaranna. Við bönnum fólki að fara í ljósabekki og því er eðlilegt að verja fólk fyrir logandi strókum eldgoss.

Búfénaður veldur svipuðum gróðurhúsaáhrifum og öll umferð og fiskiskipaflotinn til samans. Svo vill til að fitan í rauðu kjöti eykur líkur á hjartaáfalli. Þeir sem minnka kjötát og auka neyslu á fjölómettuðum fitusýrum sem fást í fiski og grænmeti um 10 prósent minnka líkurnar á hjartaáfalli um fimmtung. Okkur ber skylda til gagnvart umheiminum að minnka gróðurhúsaáhrifin og um leið eru hjarta- og æðasjúkdómar algengasta dánarorsök Íslendinga. Innan hundrað ára munu gróðurhúsaáhrif valda því að Maldíveyjar í Indlandshafi sökkva í sæ. Viljum við bera ábyrgð á því að Maldíveyingar glati kjörsvæði sínu? Svarthöfði leggur til að Íslendingar taki forystu í því að axla umhverfislega og heilsufarslega ábyrgð með algeru banni við neyslu nautakjöts.

Loks vill Svarthöfði banna Sjálfstæðisflokkinn. Það er engum hollt að kjósa Bjarna Ben nema ríka fólkinu. Og ríka fólkið stelur frá okkur venjulega fólkinu. Þeir sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en eru ekki ríkir, eru einungis að skaða sjálfa sig.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?