„Hefurðu ekki séð stríðsfyrirsagnirnar? Hefurðu ekki séð árásirnar og hefurðu ekki séð gauraganginn?“ spurði Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, Evu Bergþóru Guðbergsdóttur fréttamann 24. apríl 2004 eftir að stjórnarþingmenn höfðu samþykkt lagafrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum.
Eva Bergþóra svaraði forsætisráðherra neitandi og tók hann þá fram að hún þyrfti að fá sér gleraugu. Davíð sagði í sama viðtali að blaðamenn á fjölmiðlum í eigu Norðurljósa, nú 365, hefðu ekkert frelsi. Spurður um dæmi þess að eigendur misnoti fjölmiðla sýna svaraði Davíð: "Öll blöðin í dag, öll."
Á Davíðstímanum þótti sjálfstæðismönnum fátt ógeðfelldara en fjölmiðlar í eigu Baugs. Ástæðan var að þeim fannst fjölmiðlarnir fjalla á jákvæðan hátt um Jón Ásgeir Jóhannesson, en neikvæðan hátt um sjálfstæðismenn.
Davíð Oddsson er nú ritstjóri Morgunblaðsins. Í blaðinu er lítið fjallað um einn ríkasta Íslendinginn, Guðbjörgu Matthíasdóttur útgerðarkonu og milljarðamæring í Vestmannaeyjum. Eina dæmið á undanförnum mánuðum var frétt sem snerist um að Guðbjörg væri saklaus af því að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar þegar hún seldi milljarðahlut í Glitni dagana fyrir hrun. Guðbjörg er aðaleigandi Morgunblaðsins.
Svarthöfði setur núorðið alltaf upp gleraugun þegar hann les Morgunblaðið. Þar kennir ýmissa grasa. Nánast undantekningalaust er umfjöllun um Sjálfstæðisflokkinn jákvæð, en neikvæð um ríkisstjórnarflokkana. Umfjöllun um eigendur blaðsins er aldrei neikvæð. Umfjöllun um hagsmunamál eigenda blaðsins er alltaf hliðholl hagsmunum eigendanna. Morgunblaðið er neikvætt gagnvart Evrópusambandinu og afnámi kvótakerfisins og neikvætt gagnvart ríkisstjórninni.
Leiðari Morgunblaðsins á föstudag fjallaði um efnahagsskýrslu ASÍ og nauðsyn þess að stofna til stóriðjuframkvæmda. Hann endaði á orðunum: „Mikið hefur vantað upp á skilning á þessu samhengi, ekki síst hjá hinni svokölluðu velferðarstjórn sem nú situr verklítil við völd.“
Pistill í viðskiptahluta Moggans á fimmtudag sem byrjaði á umfjöllun um efnahagserfiðleika Grikkja endaði síðan í árás á íslensku ríkisstjórnina: „Því miður bendir ekkert til þess að stjórnmálaleiðtogar landsins hafi framsýni og dug til að átta sig á þessari staðreynd.“
Agnes Bragadóttir blaðamaður hefur árum saman verið yfirlýstur pólitískur stuðningsmaður Davíðs Oddssonar, sem nú er ritstjóri hennar. Hún skrifar nú fréttaröð um ríkisstjórnina. „Samfylkingin tutkar þingmenn vinstri grænna til“ var forsíðufyrirsögnin á fimmtudag. „Fullreynt að ná samkomulagi við Breta og Hollendinga“ var forsíðugrein Agnesar á föstudag. Fyrirsögnin var höfð eftir nafnlausum viðmælanda Agnesar, sem sagði efnislega það sama og leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa sagt undanfarna daga. Ekki er vitað hvort fyrirsögnin var höfð eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni eða Bjarna Benediktssyni. Það er bara vitað að nafnlausa skoðunin varð gerð að aðalfyrirsögn á forsíðu. Og Davíð ræður forsíðunni.
Kannski er miklu heilbrigðara að Morgunblaðið sé misnotað í pólitískum tilgangi heldur en að Fréttablaðið og Stöð 2 sé notað til að hygla matvörubúðum. Í það minnsta hefur Davíð ekkert verið að gagnrýna Morgunblaðið og sjálfstæðismennirnir halda bara áfram að vara við misnotkun Jóns Ásgeirs.
Hverjum þykir sinn misnotari fagur.
Blogg
Mogginn misnotaður
10:34 › 2. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
