ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

AVATAR ÍSLANDS

18:47 › 15. mars 2010

Bankamenn eru rannsóknarefni. Þeir eru menn sem gefa skuldugum ekkjum engan séns en veita helsekum útrásarvíkingum sérstaka þjónustu. Ef útrásarvíkingar skemma eitthvað, til dæmis fyrirtæki, koma bankamennirnir hlaupandi á eftir þeim og bjóða þeim að eignast það með afslætti. Ef ekkja lendir í vandræðum er svarið einfalt: Borgaðu allt!

Ef slíkur maður fer í sálfræðimat er niðurstaðan einföld. Hann er andfélagslegur siðblindingi. En Svarthöfða grunar samt að bankamenn skilji siðblindingjann eftir í vinnunni þegar þeir fara heim. Enda eru þeir ekki vondir í sjálfu sér. Þeir eru bara tannhjól í kerfi sem leiðir núna nánast alltaf til ósanngjörnustu niðurstöðunnar. Skylda sérhvers bankamanns er að hámarka arð bankans af hverjum viðskiptavini. Ef bankamaður er góður við viðskiptavin er það til þess að hámarka heildararðinn til langs tíma. Þá er hann að koma í veg fyrir að viðskiptavinurinn fari annað. 

Sagt er að viðskiptavinurinn sem skuldi bankanum milljón sé eign bankans, en sá sem skuldi bankanum milljarð eigi bankann. Þetta er ekki alveg rétt. Sá sem er í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldinni er eign bankans. Sá sem skuldar í gegnum einkahlutafélag á bankann. Hann getur hvenær sem er, virðist vera, farið í kennitöluhopp. 

Sævar Jónsson, fyrrverandi knattspyrnumaður hjá Val og fleiri liðum, hefur tæklað sínar aðstæður á athyglisverðan hátt. Vegna yfirvofandi gjaldþrots síns ákvað hann að færa skartgripaverslunina sína, sem hann átti með helstu forsprökkum Baugs, yfir á eiginkonu sína. Í samtali við DV útskýrði hann aðstöðu sína svona: „Ég er búinn að missa húsið og ég hef engan áhuga á því að missa fleira. Ég átti raunverulega engan annan kost.“ 

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi eigandi Landsbankans, hefur misst allt. En ekki alveg. Hann er blessaður með framúrskarandi eiginkonu. Og húsið þeirra og bíllinn eru skráð á hana. Því er hann ekki alveg á flæðiskeri staddur, þrátt fyrir gjaldþrot. 

Nú er komið í ljós að Sævar missti eitt hús, en er að byggja annað miklu stærra. Það er skráð á eiginkonuna, eins og skartið. Ólíkt venjulegum Íslendingum á Sævar fjárhagslegt framhaldslíf.

Fyrir nokkrum mánuðum vofði gjaldþrotið yfir Bjössa í World Class. Hann flutti rekstur sinn á milli kennitalna með hjálp bankans. Á sama tíma var hann að byggja veglegan sumarbústað við Þingvallavatn. 

Þetta á sér ekki orsök í því að bankarnir og bankamennirnir séu vondir menn, heldur að yfirvöld gerðu reglurnar þannig að bankinn hagnast á því að níðast á ekkjum og hygla fjárglæframönnum. Yfirvöld gerðu það þannig að fólk fær húsnæðislán með veðsetningu í sér sjálfu, en ekki húsnæðinu. Maður getur ekki lagt niður sjálfan sig, eins og athafnamennirnir leggja niður eitt fyrirtæki og stofna annað.

Orðið „Avatar“ úr sanskrít merkir „form af sjálfi“. Einkahlutafélög útrásarvíkinga voru þeirra Avatarar. Rétt eins og í kvikmyndinni Avatar gátu þeir athafnað sig án áhættu fyrir sjálfa sig með því  að nota Avatarinn. Avatar er eins og klón, nema í þeirra tilfelli er það fjarstýrt. Svarthöfði hefur sem sagt leitað allra leiða til að útskýra og skilja ranglætið í íslensku samfélagi. 

Kannski þrífst ranglætið einfaldlega vegna þess að yfirvöld komu því á og viðhalda því. Og á meðan það borgar sig að níðast á ekkjum, en hygla siðblindingjum, verður níðst á ekkjum og siðblindingjum hyglað.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.