ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

EKKI KJÓSA UM KVÓTANN!

16:33 › 14. mars 2010

Þjóðaratkvæðagreiðslan um seinustu helgi var hin ágætasta. Svarthöfði fellst á þau sjónarmið Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að nauðsynlegt hafi verið hjá forseta Íslands að taka af skarið og vísa málinu til þjóðarinnar. Hvorki Svarthöfði né Bjarni hafa í dag minnstu efasemdir við vald forsetans til þess að láta þjóðina úrskurða í mikilvægum málum. 

Að vísu horfði öðruvísi við árið 2004 þegar Sjálfstæðisflokkurinn vildi fá fjölmiðlalög til að tryggja að Jón Ásgeir Jóhannesson og félagar hans næðu ekki heljartaki á fjölmiðlum Íslands. Þá steig forsetinn fram og sagðist myndu vísa lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta var auðvitað ömurleg framganga forsetans því í þá daga var alls ekki ljóst hvort forsetinn hefði vald til þess að vísa lögum til þjóðarinnar. Þetta benti Davíð Oddsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, ítrekað á. Þetta var hárrétt hjá Davíð. 

En síðan eru liðin mörg ár. Bjarni hefur samþykkt að íslenska þjóðin eigi að borga Bretum og Hollendingum vegna Icesave. En hann er ósáttur við upphæðina sem ríkisstjórnin vill borga. Á þeim árum sem eru liðin frá því forsetinn hafnaði fjölmiðlalögunum hefur komið á daginn að hann hefur fullan rétt á því að vísa lögum í þjóðaratkvæði. Þetta vita Bjarni og aðrir sjálfstæðismenn. En þeim er jafnljóst að beint lýðræði verður að hafa sínar hömlur svo valdahlutföll í samfélaginu raskist ekki. 

Einhverjir vitleysingar hafa í framhaldi af þjóðaratkvæðagreiðslunni krafist þess að kosið verði um kvótann. Þetta er fráleitt og ekki á þekkingarsviði almennings. Fólkið áttar sig ekki á því að kvótinn hefur fært Íslandi auð og hagsæld. Bjarni var spurður um þetta atriði á dögunum. Svar hans var alveg skýrt: Um hvað ætti svo sem að kjósa? Svarthöfði fagnar þessu viðhorfi. Við verðum að velja vandlega þau mál sem fara í þjóðaratkvæði. Sumt er bara þannig vaxið að fólkið veit ekki nóg til þess að kveða upp dóm. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.