ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Heppna fólkið

19:37 › 25. febrúar 2010

Svarthöfði hugsar reglulega til baka til ársins 2007 þegar menn eins og Karl Wernersson voru átrúnaðargoð hans og Ögmundur Jónasson var geðveikur fyrir að vilja bankana úr landi. Svarthöfði trúði því innilega að hann væri heppinn að vera Íslendingur. Því ef útrásarvíkingunum vegnaði vel myndi honum líka vegna vel. En það fór aldrei þannig.

Árið 2007 var Björgólfur Guðmundsson gjafmildur heiðursmaður. Þorvaldur Gylfason nöldurskjóða. Steingrímur J. Sigfússon var risaeðla. Grameðla, nánar tiltekið. 

Árið 2010 hefur allt snúist við. Nú er orðið ljóst að útrásarvíkingarnir voru ekki endilega hæfileikaríkir, heldur fyrst og fremst heppnir að vera á réttum stað á réttum tíma og nógu vitlausir til að taka stórfelld lán og kaupa allt sem hreyfðist. Sá sem keyrði um á Range Rover árið 2007 var því líklega ekki tær snillingur, eins og margir héldu, heldur heppinn eða lánsamur. Og líklega siðlaus líka. En siðleysingjar eru líka heppnir þegar þeim er leyft að vaða uppi.

Auðmennirnir héldu áfram að vera heppnir þegar allir markaðir hækkuðu. Nema Hannes Smárason, sem náði að setja Íslandsmet í tapi með FL Group þegar nánast allt fór upp á við. Hann var óheppinn að græða ekki þrátt fyrir eigin vanhæfni. Aðrir með sambærilega hæfni náðu að græða. Svo lengi sem þeir fengu lán hjá félögum sínum.

Sumir eru heppnari en aðrir og náðu að viðhalda heppni sinni fram yfir hrunið. Svafa Grönfeldt sat í bankaráði Landsbankans þegar hún fékk þá snilldarhugdettu, rétt fyrir hrun, að selja 80 milljónir króna í peningamarkaðssjóði Landsbankans. Á sama tíma var öðrum ýmist ekki leyft það eða þeir höfðu ekki innherjaupplýsingar til að átta sig á stöðunni.

Baldur Guðlaugsson, sem Morgunblaðið kallar „sómakæran embættismann“, er líka lukkunnar pamfíll. Baldur, sem er góðvinur fyrrverandi seðlabankastjóra, var svo heppinn að selja hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir 180 milljónir króna í september tveimur vikum fyrir hrun bankans. Hann hafði það hlutverk fyrir Íslands hönd að ræða alvarlega stöðu bankans á fundi með breskum yfirvöldum áður en hann seldi.

Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum, vinkona fyrrverandi seðlabankastjóra, er stálheppin kona. Hún átti 1,7 prósenta hlut í Glitni, en náði að selja vikuna fyrir hrun bankans. Þar náði hún að bjarga 3,5 milljörðum króna. Helsti ráðgjafi Guðbjargar er góðvinur seðlabankastjórans fyrrverandi og var meðal annars veislustjóri í fimmtugsafmæli hans. Nú hefur Guðbjörg ráðið seðlabankastjórann fyrrverandi í vinnu. Hann er líka heppinn.

Heppnustu stéttir Íslands eru lögfræðingar og endurskoðendur. Þeir hönnuðu íslenska efnahagsundrið og skrifuðu upp á það gegn vænu gjaldi. Nú sitja þeir í skilanefndum við að hreinsa upp ósómann eftir sjálfa sig og fá ríkulega greitt. Þeir eru eins og ræstitæknar sem drulla allt út til að útvega sér vinnu. Arkitektar hrunsins verða arkitektar endurreisnarinnar. 

Stundum er heppni engin tilviljun. Lánið er smitandi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.