Tryggvi Þór Herbertsson er talandi dæmi um Íslending sem alltaf skýst á toppinn. Ungur að aldri var hann rótari einnar vinsælustu hljómsveitar landsins sem söng og spilaði sig inn í hjörtu allra landsmanna.
Tryggvi sá um að stilla græjurnar svo hvergi yrði falskur tónn. Eftir að hafa baðað sig í ljóma frægðar umbjóðenda sinna lagðist hann í nám og krækti sér í meistaragráðu í hagfræði. Svo skaust hann á toppinn sem vitringur á því sviði og lagði línurnar fyrir íslenskt fjármálakerfi til framtíðar.
Í framhaldinu varð hann prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Þar komst hann fljótt að þeirri niðurstöðu að sú stétt manna sem trónir á hæsta tindi skólakerfisins er afar lágt launuð. Hann hitti því Björgólf Guðmundsson, þá auðugasta mann landsins, og bauðst til að bæta hans nafni við starfsheiti sitt, gegn gjaldi. Á nafnspjaldinu stæði þá Björgólfur Guðmundsson, prófessor í hagfræði, Tryggvi Þór Herbertsson. Þarna er að baki sama hugmyndafræði og hjá íþróttamönnum sem hlaupa um með vörumerki í bak og fyrir. Áður en til þess kæmi að Tryggvi fengi að heita Björgólfur komst hann að þeirri niðurstöðu að farsælast væri fyrir hann að verða Björgólfur. Hann hætti því í Háskólanum og varð bankastjóri Askar Capital og eins konar rótari útrásarvíkinganna.
Það er auðvitað þekkt að rótarar eru gjarnan einstaklingar sem þrá það eitt að verða poppstjörnur en hafa ekki hæfileikana sem þarf. En það er alltaf möguleiki og það veit Tryggvi. Hann komst aldrei í hljómsveitina forðum en þá opnaðist sá möguleiki að verða hluti af stórsveit útrásarinnar. Hann sá því um að tengja söngkerfi og hljóðfæri Wernersbræðra. En eitthvað bar út af því rótarinn var fljótlega rekinn en slapp þó við að borga kúlulánið sitt.
Þá voru góð ráð dýr. Ísland rambaði á barmi kreppu. Tryggvi bauð forsætisráðherra krafta sína sem hann þáði. Svo hrundi Ísland og rótari forsætisráðherra var látinn fara. Tryggvi hafði áttað sig á því að þeir Íslendingar sem boðuðu heiðarleika og gagnsæi voru í tísku. Hann lyfti merki sínu hátt á loft og krafðist uppgjörs. Í framhaldinu var hann kosinn á Alþingi Íslendinga. Þar situr hann nú með kúlulánafortíð sína og dæmir þá sem framkölluðu hrunið. Hann er einn mesti snillingur Íslands, með níu líf eins og kötturinn. Hann er rótari Íslands.
Blogg
Rótari útrásarinnar
21:21 › 12. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
