Reykjavík er smáborg ef miðað er við heimsbyggðina. En þegar grannt er skoðað kemur í ljós að mikil reisn er yfir þeim sem stjórna á þeim bænum.
Það er aumur borgarfulltrúi í meirihluta sem ekki er með upp undir eða yfir milljón krónur á mánuði. Borgarstjórinn er með ritara, einkabílstjóra og aðstoðarmenn. Og forseti borgarstjórnar sem hefur það ábyrgðarmikla starf með höndum að stýra fundum er með sinn einkabílstjóra sem er auðvitað nauðsynlegt ef hann þarf að bregða sér á tónleika eða sinna öðrum störfum í þágu borgarinnar.
Síðan eru þessir sömu fulltrúar í ábyrgðarmiklum embættum á vegum fyrirtækja í eigu smáborgarinnar. Vegna útrásar Orkuveitunnar og erlendra hagsmuna þurfa þeir að ferðast einstaklega mikið um heimsbyggðina. Þeir duglegustu ferðast fyrir upphæð sem nemur verkamannalaunum á hverju ári. Og dugnaðurinn skilar sér í fyrirtækjum eins og REI sem bera hróður lands og borgar víða.
Það kostar peninga að halda reisn. Árið 2007 var það ekkert vandamál. Allir fengu lán í útlöndum. Nú er staðan erfiðari hvað það varðar. En það er samt ekkert vandamál. Fólkið með einkabílstjórana, aðstoðarmennina og ritarana hækkar bara skatta og útsvar á almenning. Síðan er haldið áfram að ferðast um gjörvalla heimsbyggðina. Vandinn er aðeins sá að þeir einstaklingar sem eiga að standa undir neyslu broddborgaranna finnast ekki.
En það gerir ekkert til. Lánamarkaðir hljóta að opnast að nýju. Og þá getur Ísland haldið áfram að vera stórasta landið. Og Reykjavík er borg heimsins en ekki heimskunnar.
Blogg
BORG HEIMSINS
22:26 › 8. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
