ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

ÍSLENSKIR ÓVITAR

18:07 › 6. janúar 2010

Eitt mesta sérkenni Íslendinga er að þeir virðast gjarnan bíða þess að utanaðkomandi aðilar bjargi þeim. Að þessu leyti er þjóðin eins og barn, enda er gjarnan talað um að Íslendingar séu ung þjóð. Frá hruni hafa bjargvættirnir verið Mats Josefsson, Svein Harald Öygaard, allir útlenskir gestir Silfurs Egils, Joseph Stiglitz og fleiri. 

Þessi áhersla Íslendinga á ábyrgð hinna utanaðkomandi á rót sína í því að þjóðin er tiltölulega nýbúin að slíta barnsskónum frá því að hafa verið nýlenda Dana. Íslendingar hafa barnalegt og einfaldað viðhorf gagnvart útlendingum, líkt og barn gagnvart foreldri, af því að stjórnmálalega hlýddu þeir tilskipunum annarrar þjóðar í sjö aldir. Stundum fengu þeir gott, en stundum var maðkur í gottinu.

Vegna þess hve þjóðin er barnaleg gerði nánast enginn Íslendingur athugasemd þegar íslensk stjórnvöld svöruðu utanaðkomandi gagnrýni árið 2006 með þeim rökum að útlendingarnir væru öfundsjúkir. Í öðrum tilfellum voru útlendingar sagðir vera á móti Íslendingum. Davíð Oddsson útskýrði upphafið að kreppunni vorið 2008 með því að óvinveittir vogunarsjóðir væru að gera árás. Áður hafði hann afskrifað alla gagnrýni á þeim grundvelli að hún kæmi frá Baugsliðinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur að matsfyrirtækið Standard&Poors sé á mála hjá ríkisstjórninni vegna þess að það breytti horfum úr neikvæðum í stöðugar við tímabundna samþykkt Icesave. 

Fáir fullorðnir með eðlilegan þroska myndu beita fyrir sig slíkum rökum í samskiptum við aðra. Jafnvel dæmigerður íslenskur asni, sem legði Range Rover sínum ólöglega, myndi ekki svara gagnrýni vegfaranda með þeim orðum að gagnrýnandinn væri á móti sér. „Þú ert bara öfundsjúkur,“ myndi hann varla segja, þótt erfitt sé að fullyrða slíkt um Range Rover-eigendur. 

Í hugarheimi barnsins eru allar þessar útskýringar gildar. Einhver er í liði með öðrum, öfundsjúkur, á móti barninu eða bara vondur. Í leikskólagarðinum og í barnaskólanum eru þetta algeng andsvör. Allt bendir til þess að þroski
þjóðfélagsumræðunnar á Íslandi samsvari um það bil þroska 8 ára barns. Enda er sjálfstæði þjóðarinnar bara átta ára í hundaárum.

Mörg dæmi eru þó um að umræðan hafi risið á hærra þroskastig. Í aðdraganda bankahrunsins svaraði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýni bandarísks greinanda með þeim orðum að hann þyrfti að fara aftur í skóla. Þar var um að ræða svar sem átta ára barn réði varla við og væri helst á færi um 13 ára gelgju.

Helsta vörn stjórnvalda vegna hrunsins var að bankinn Lehman-bræður hefði fallið. Á leikvellinum er fullkomlega við hæfi að kenna öðrum um og öllu öðru en sjálfum sér. Þó ber að líta til þess að skólakrakkar biðjast oft afsökunar að lokum. 

Útsmognasta bragð barnanna á leikvellinum er hins vegar að benda á næsta og segja „hann gerði það!“ þegar þau hafa gert eitthvað alvarlegt af sér. Það er einmitt afstaða Sjálfstæðisflokksins í Icesave-málinu.

Steingrímur J. stendur nú drullugur upp fyrir haus og hágrátandi á leikvelli íslenskra stjórnmála. Nú fór hins vegar í verra, því breska barnfóstran er komin á svæðið. Hún hótar að Íslendingum verði ekki hleypt inn í ESB. Og íturvaxin hollensk fóstra hótar að refsa okkur. Kannski yrði harðasta refsingin að gera Bjarna Benediktsson forsætisráðherra og eftirláta honum að leysa Icesave-málið, með fjármálaráðherrann Sigmund Davíð Gunnlaugsson sér við hlið. Þá fáum við þúsund milljarða lán frá Noregi, vísum Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr landi og látum hann hjálpa okkur að taka upp evru alveg einhliða. Nana nana bú bú!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.