Smáglæpamaður sem stelur súpu í matvöruverslun fær fulla athygli lögreglu og dómstóla á meðan sá sem stelur heilu bönkunum sleppur og það meira að segja án áminningar. Það tekur kerfið skamman tíma að kortleggja gjörðir þjófsins í matvörubúðinni og senda hann í afplánun. Og það þarf aðeins eina radarbyssu og tvær löggur til að sanna glæpi þeirra sem aka of hratt um Suðurgötuna. Réttarkerfið er ekki komið á það stig að brennimerkja smáþjófa eða höggva af þeim hönd, sem auðvitað væri réttast til að fyrirbyggja frekari afbrot. Og kerfið hefur engan tíma til þess að kafa ofan í flækjurnar sem teygja anga sína til Tortóla og Lúxemborgar. Þau mál eru of flókin fyrir löggu og dómstóla. Og það er þess vegna sem víkingarnir sem fóru ránshendi um Evrópu verða ekki lögsóttir. Þeir fara úr landi undir heiðursverði og kaupa nýja banka.
En þetta er allt saman skiljanlegt. Það er einfalt að sakfella grímubúinn einstakling sem kastar steini í hús. Skýrslugerðin er þægileg og réttarhöld einföld. Skítt með það þótt stóru fiskarnir sleppi. Aðalatriðið er að ná þeim litlu og refsa þeim grimmilega.
Auðvitað er það skiljanlegt að réttarkerfið vilji sína virkni. Fyrst ekki er hægt að koma böndum á embættismenn, stjórnmálamenn og aðra skúrka bankahrunsins þá er ágætt að loka inni í fangelsi þá sem mótmæltu með þeim tilþrifum að eitthvað lét undan. Það er þá allavega eitthvað að gerast. Og það er af nógu að taka hjá löggunni.
Fjöldi mynda er til af atburðunum á Austurvelli þegar búsáhaldabyltingin átti sér stað. Líklega er hægt að ákæra þúsundir manna fyrir að vera með hávaða á almannafæri. Réttarkerfið getur eytt í það næstu mánuðum að fara í gegnum öll þau ósköp. Við þurfum ekkert að velta fyrir okkur sekt eða sakleysi þeirra sem áttu að gæta hagsmuna Íslands en brugðust. Það er mikilvægara að fá mótmælendur dæmda en sómakæra hvítflibba á borð við Árna Mathiesen, Björgvin G. Sigurðsson, Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Jónas Fr. Jónsson og Kjartan Gunnarsson. Nei, smáglæpir eru óþolandi og þá verður að uppræta. Skítt með þá sem framkölluðu hrunið. Þeir gerðu það óvart.
Blogg
Óþolandi smáglæpir
18:05 › 23. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
