Það eina sem getur bjargað Íslendingum út úr Icesave-málinu er samninganefnd skipuð þrautseigustu og útsmognustu Íslendingum heimsins. Svarthöfði hefur tekið að sér að mynda nefndina til að fyrirbyggja að henni verði aftur stýrt af alþýðubandalagsmanni.
Kallað hefur verið eftir því að Ólafur Ragnar Grímsson forseti sjái sjálfur um samningaviðræðurnar. Það væru afglöp. Að vanda mundi forsetinn halda langar ræður um gríðarlegar auðlindir Íslendinga, þannig að breska samninganefndin myndi slefa af græðgi. Það síðasta sem við þurfum er slíkur samningamaður.
Fyrstan í nefndina velur Svarthöfði Lárus Björn Svavarsson. Nei, hann er ekki sonur Svavars Gestssonar. Lárus er oftast kallaður Lalli Johns og enginn myndi láta sér detta í hug að rukka hann um eitt eða neitt. Enda myndi hann ekki borga krónu. Með Lalla í nefndinni kæmu Íslendingar út í plús úr Icesave-málinu.
Sumir segja að samningamenn eigi að vera harðir. Því verður ekki neitað að harðsvíraðar samningakempur geta beygt veikari andstæðinga, en ekki þegar allt er í hnút. Við þurfum krútt. Raunar þurfum við krúttlegustu fullorðna menn þessa heims, hljómsveitina Sigur Rós. Bretarnir skilja ekki orð af því sem þeir segja, en samt finnst þeim þeir í senn töff og krúttlegir, hvernig sem á því stendur.
„Hoppípolla, gobbledigook,“ myndu þeir óma himneskri, dáleiðandi röddu. Og meðan þýðandinn miðlaði textum þeirra jafnóðum myndu Bretar smám saman verða þess áskynja að Íslendingar væru ekki í neinum stígvélum, þeir væru með vind í hárinu og rennblautir með blóðnasir. Eins og handrukkaðir unglingar.
Sem formann nefndarinnar skipar Svarthöfði Ólaf Stefánsson handboltamann. Hann stöðvar hverja neikvæða kröfu Breta með pípi svo þeir komast ekki fet. Ef hann nær ekki að sannfæra þá, mun hann rugla þá svo mikið að þeir samþykkja hvað sem er.
Og þannig verður það að hin djarfa samninganefnd Íslands skipuð Lalla Johns, Sigur Rós og Ólafi Stefánssyni, snýr aftur heim með glæsilegan samning þjóðinni til bjargar. „Það eru hlutir að birtast hér sem áður voru bara hugsanir og tilfinningar. Við vorum að klifra þetta fjall og það voru tvær leiðir í dag. Önnur var *bíb* og hin var upp.“
Blogg
ICESAVE-NEFNDIN
21:27 › 15. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
