ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Gunnar á leiðarenda

16:53 › 13. janúar 2010

Til eru þeir pólitíkusar á Íslandi sem hafa níu líf, rétt eins og kötturinn. Meðal þeirra sem virðast vera fallnir í valinn en rísa jafnharðan upp aftur er Gunnar Birgisson, héraðshöfðingi í Kópavogi. Gunnar hefur marga fjöruna sopið eða ætti að segja drukkið heilu hafsvæðin af spillingarsjó. En það er alveg sama hvað dynur á í hans pólitíska lífi. Hann rís alltaf upp aftur og lýðurinn í Kópavogi heillar meistara sinn.

Gunnar var einn vinsælasti bæjarstjóri allra tíma í heimabæ sínum. Hann stjórnaði þessu unga sveitarfélagi af festu og með jákvæðri hvatningu. Og húsin í bænum þutu upp á mettíma. Til þess að það gengi snurðulaust gætti bæjarstjórinn þess að hafa gott samband við valda verktaka sem fengu verkefni úr lófa bæjarstjórans. Þannig var líklegast að húsin yrðu ekki byggð á sandi. Og það er komið á daginn að byggingarnar í Kópavogi hafa staðist tímans tönn.

Einhverjir hneyksluðust á því að fyrirtæki dóttur bæjarstjórans fékk valin verkefni, án útboðs, frá bænum. Þetta var miskunnarlaust notað gegn hinum vinsæla bæjarstjóra sem tók bakföll undan brotsjóum þeirra sem sáu spillinguna í hverju horni. Auðvitað var dóttirin valin. Gunnar þekkti vel til verka hennar og vissi að það var bænum einkar hagstætt að fá hana til að leysa hin ýmsu útgáfumál bæjarins. Þótt einhverjir hafi verið andvígir barnsvæðingunni í Kópavogi var augljóst að ekki mátti stúlkan gjalda fyrir að vera dóttir bæjarstjórans.

En það komu upp fleiri mál í Kópavogi sem notuð voru gegn bæjarstjóranum. Hann hafði, eftir mikla hvatningu, fallist á að sitja í stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna bæjarins. Þegar bæinn vantaði skotsilfur var nærtækast að bæjarstjórinn leitaði til lífeyrissjóðsins. Þarna var klár ávinningur bæði sjóðs og bæjar. Vextir voru háir og greiðslugeta Kópavogs klár. Samt var þetta notað gegn Gunnari af fullum fantaskap. Pólitískir andstæðingar hans og Fjármálaeftirlitið tóku höndum saman um að fordæma aðgerðina. Málinu var vísað til lögreglu og Gunnar neyddist til að segja af sér sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi. Hann virtist vera kominn á leiðarenda.

En það er með Gunnar eins og nafna hans á Hlíðarenda að báðir eru vígamenn. Að vísu er ekki ljóst hvort Gunnar Birgisson nær að stökkva hæð sína í öllum herklæðum. En það er þó víst að enginn sér við honum á vígvelli stjórnmálanna í Kópavogi. Nú hefur hann komið málum þannig fyrir að arftaki hans, Gunnsteinn Sigurðsson, hefur lýst yfir flótta sínum úr pólitíkinni. Milli gráthviðnanna lýsti hann því að gamli bæjarstjórinn hefði grafið markvisst undan sér með áðurnefndum afleiðingum. Kópavogsbúar eru aftur á móti alsælir með að fá kónginn sinn aftur. Eftir pólitískt heljarstökk í öllum herklæðum er hann á hraðri leið í leiðtogastólinn aftur. Bæjarstjórinn hefur snúið til baka úr útlegðinni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.