ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

ÁLFARNIR TÓKU ÞÁ!

08:23 › 12. janúar 2010

Svarthöfði hefur verið á nálum yfir umræðunni erlendis í kjölfar ákvörðunar forsetans um að treysta mönnum eins og honum fyrir Icesave-deilunni. Við hvert geðshræringarkast Jóhönnu Sigurðardóttur yfir óánægju erlendis verður Svarthöfði sífellt meðvitaðri um sjálfan sig og miðar allar athafnir sínar við möguleg viðbrögð Breta og Hollendinga. Hann er orðinn meðvirkur þeim. Svarthöfða líður eins og hann sé í ofbeldissambúð.

Erlendir fjölmiðlar keppast um að draga upp sem undarlegasta mynd af Íslendingum. Við vorum öll sjómenn, en ákváðum að verða bankamenn og fórum á hausinn af því að við kunnum ekki á banka. Þessi heimskulega ákvörðun skýrist af því að við erum svo vitlaus að við trúum öll á álfa. Nú ætlum við aftur á sjóinn. Samkvæmt þessu ætti aldrei að ræða um Icesave-deiluna við Hollendinga á Íslandi án þess að minnast á að þeir gangi allir um í tréskóm og að þeir rækti fullt af túlípönum til að yfirgnæfa óþefinn úr síkjunum.

Það er eins og Dithmar Blefken vinni á öllum bresku blöðunum. Hann er frægasti útlendingurinn til að rægja Íslendinga erlendis. Hann var að sjálfsögðu Hollendingur og gaf út bókina Islandia í síkjaskornu heimalandi sínu undir sjávarmáli árið 1607. Blefken fullyrti í bókinni að Íslendingar ættu í nánum tengslum við Satan. Hann sagði að djöfullinn vekti fengsæla íslenska fiskimenn á nóttunni og sendi þá á sjóinn. Hann hélt því fram að fjölskyldur á Íslandi pissuðu allar í sama koppinn og þvoðu sér í andlitinu upp úr sama koppi, trúandi því að það fegraði andlitið. Ekki er Linda Pé hollensk. 

Fyrsti ímyndarvandi íslensku þjóðarinnar spratt upp úr þessu rógsriti Blefkens. Ef það hefði verið til skuldatryggingarálag á þessum tíma hefði það farið í ruslflokk daginn sem bókin kom út. En í þessari gömlu bók felst hins vegar sóknarfæri nútímans; sjálf lausnin á Icesave-deilunni!

Af bók Blefkens lærðu Hollendingar að Íslendingar hefðu púka og anda í þjónustu sinni. Í erlendum fjölmiðlum endurómar lygin enn. Útlenskir blaðamenn eru ófærir um að skrifa um efnahagskreppuna án þess að taka fram að við sjáum álfa í hverju horni. Með öðrum orðum að við séum svo vitlaus að við eigum þetta skilið. Kannski er það ekki skrítið. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, ein frægasta sjónvarpskona landsins, sagðist trúa á álfa í frétt um efnahagshrunið. Og fyrir nokkrum vikum gaf ung íslensk stúlka út bók á ensku um kynlíf með álfum, eftir að hafa átt í taumlausu kynlífssambandi við álf, að eigin sögn. 

Í ljósi alvarlegrar deilu Breta við Íslendinga, þar sem Bretar krefja okkur í sífellu um að „endurgreiða“ þeim Icesave-peningana, hefur Svarthöfði ákveðið að skrifa bresku þjóðinni bréf. Það tekur mið af ímynd landsmanna og er svohljóðandi. „Við fórum aftur út á sjó. Á meðan tóku álfarnir alla peningana ykkar. Því miður.“

Af umfjöllun Breta um Íslendinga að dæma munu þeir taka skýringuna gilda. Til að fullvissa þá gætum við sviðsett skæruhernað álfanna og herleiðangra okkar á hálendið til að uppræta þá. Á gamlárskvöld kæmu svo samhentar loftárásir á álfana úr öllum byggðum landsins. Ekki segja að við höfum ekki reynt!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.