Sótsvartur almúginn á Íslandi skilur ekki þær reglur sem gilda þegar yfirstétt stjórnmála og embættismanna er annarsvegar. Fólkið í landinu á að vera þakklátt þeim sem fást til þess að sinna opinberum störfum og stjórna landinu þannig að vel fari. Það er augljóst að sumt sem þessir fórnfúsu synir og dætur landsins aðhafast má ekki vera opinbert. Það kallar á hártoganir og misskilning.
Þingmenn Íslands eru illa launaðir sem kallar á það að þeim sé umbunað á bak við tjöldin með sporslum sem geta létt þeim líf og lund. Þess vegna er hluti af þeirra starfskjörum að fá skattrjálsan möguleika á skitnum 60 þúsund kalli á mánuði. Til þess að skattfrelsið nái fram að ganga þurfa láglaunamennnirnir á Alþingi aðeins að leggja fram nótur og málið er dautt. Sá sem gætir þess að reglum sé fylgt er spillingarvörðurinn Helgi Bernódusson. Hann mætti í sjónvarpsviðtal til nafna síns Seljans í Ríkissjónvarpinu. Þar rökstuddi embættismaðurinn af þunga að engum komi það við hvort þingmaður kaupi blómvönd fyrir fimm þúsund kall til að gefa einhverjum kjósanda sínum. Og þótt þingmaður bregðis sér út að borða á Goldfinger eða Dominos er aðeins hans mál. Greina mátti skiljanlega fyrirlitningu þegar spillingarvörður Alþingis áréttaði að almenningi kæmi þetta ekki við og ætti ekkert með að vera að heimta slíkar upplýsingar upp á borðið.
Svarthöfði fær glímuskjálfta þegar samhugurinn með Helga þingverði hellist yfir hann. Það sem embættismaðurinn er að segja er að auðvitað passar hann upp á að þingmenn taki sér ekki fé að óþörfu. Ef hann er á vaktinni þá er öll umræða óþörf. Hann er hliðvörður. Það væri beinlínis ósiðlegt að ætla það að embættismaðurinn gæti náð taki á einstökum þingmönnum í gegnum þær nótur sem þeir leggja fram.
Viðurkennt var fyrir hrun að Ísland er nánast spillingarfrítt land. Örfá dæmi hafa komið upp þar sem þingmenn urðu uppvísir að einskonar misferli sem voru aðeins mistyök sem gleymdist að leiðrétta. Jólakort voru send út á kostnað þingsins og farið í utanlandsferð til að spila fótbolta við þarlenda kollega. Þetta lak út vegna þess að Helgi hliðvörður sofnaði á spillingarvaktinni. Fennt hefur yfir önnur mál sem ekki voru til þess fallin að þola hártoganir skattborgaranna.
Ísland er öfgalaust land. Breskir þingmenn hafa verið ofsóttir af kjósendum sínum vegna kostnaðarreikninga sem litlu máli skipta. Þarlent þingkonugrey, Jacqui Smith, lenti til dæmis í vandræðum vegna þess að tappinn í baðkarinu hennar týndist. Líklega komst hún ekki í bað. Hún sá þá leið úr vandræðum sínum að fara í byggingavöruverslun og kaupa tappa fyrir sem samsvara 162. krónur. Hún fékk nótu og eðli málsins samkvæmt lét hún þingið borga hinn útlagða kostnað sem átti að tryggja að hún væri ekki illa lyktandi á vinnustaðnum. Þetta komst upp og skinhelgur breskur almenningur ætlaði vitlaus að verða vegna útgjaldanna. Nú fara allar þeirra nótur á Netið sem er auðvitað einkenni um öfga samfélags sem treystir ekki yfirstétt sinni.
Okkar skynhelgi Helgi gætir þess vandlega að íslenskt samfélag fari ekki niður á þetta plan. Og það verður best tryggt með eðlilegri og sjálfsagðri leynd sem grundvallast á því einu að fyrirbyggja vangaveltur byggðar á óljósum útgjöldum einstakra þingmanna.
Blogg
Helgi skynhelgi
11:35 › 9. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
