Svarthöfði er sleginn yfir pistli Björgvins G. Sigurðssonar þingmanns um nafnlausar ásakanir í hans garð á netinu. Svarthöfði hefði nefnilega aldrei trúað því að einhver tæki mark á þessu rugli, hvað þá háttvirtur alþingismaður.
Björgvin segir að ekki sé til meira óréttlæti en mannorðsníð. Nú vill svo til að tilteknir aðilar hafa gjörsamlega rústað fjárhag tugþúsunda saklausra Íslendinga með gagnrýnisleysi og vítaverðu gáleysi, en það óréttlæti er ekki í forgangi hjá viðskiptaráðherranum fyrrverandi. Nei, hann vill hreinsanir á vefnum í forgang. Þeir sem tjá sig ómaklega og nafnlaust eiga að vera dregnir upp á yfirborðið og látnir mæta dómara sínum. Eða í það minnsta eigi að refsa þeim sem settu upp vefsíðuna, þar sem einhver ruglaði. Björgvin ætlar að „beita sér af öllu afli“ til að breyta lögum um ærumeiðingar, sem allra hraðast.
Ólíkt því sem Björgvin kann að telja eru stærstu vandamál þjóðarinnar ekki þau að nafnleysingi hafi náð að skrifa rugl á netsíðuna ER.is, sem er spjallvettvangur mæðrasíðunnar Barnalands, um ímyndað fyllerí hans og framhjáhald. Vandinn er sá að meðan hann var viðskiptaráðherra hrundu þrír stærstu bankar landsins fyrirvaralaust, og krónan sökk niður á botn. Ríkisstjórn hans hafði búið þannig um hnútana að almenningur sökk með og margir berjast nú við að ná andanum. Innan tveggja ára munu 40% Íslendinga skulda meira í húsnæði sínu en þeir eiga. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert fyrir þetta fólk. En Björgvin ætlar að beita öllu sínu afli í að stoppa húsmæðurnar sem slúðra á Barnalandi.
Áttum okkur strax á því að ef yfirvöldum verður gert kleift að refsa nafnlausum bloggurum munu þau fara gegn fleirum en þörf er á. Ef lög verða sett gegn nafnlausu rugli munu lögin verða notuð gegn öllu nafnlausu á netinu. Það væri verra, því einhverjar mikilvægustu uppljóstranir sem upp koma í samfélögum koma oft sem nafnlausar heimildir, jafnvel í athugasemdum á netinu.
Netið endurspeglar mannlífið. Nafnlausir bloggarar eru ekkert betri en fólk er almennt. Í samfélagi okkar leynast leiðindapúkar og rógberar - en stundum - stórmerkilegir uppljóstrarar. Það sem Björgvin vill gera er hins vegar að beygja frjálsar umræður á netinu undir vald yfirvalda. Þá verður af sem áður var, að fólk geti tjáð sig jafnfrjálst á netinu og í raunheimum.
Til að öðlast fullnaðarsigur gæti Björgvin í framhaldinu krafist þess að upptökubúnaði verði komið fyrir við alla heita potta landsins, svo yfirvöld geti fylgst með því hvort þar sé dylgjað. Þá mætti draga rógberana glóðvolga upp úr pottinum og færa þá fyrir dómara, eða sundlaugarstjórana, sem bera ábyrgð á þeim vettvangi sem rógberinn nýtti sér.
Það er nefnilega bara stigsmunur á nafnlausum, rakalausum fullyrðingum á netinu og í heita pottinum. Munurinn felst í því að fleiri komast í fullyrðingarnar á netinu. Hins vegar eru hvorki fleiri né færri sem taka mark á þeim.
Svarthöfði hefur ímugust á sumu þvaðrinu sem fer fram nafnlaust. Jafnframt hefur hann rekist á ófáar athugasemdirnar þar sem gífurlega mikilvægar upplýsingar hafa komið fram. Í fyrstu líða upplýsingarnar fyrir nafnleysið. En slíkar fullyrðingar geta reynst vera réttar eftir nánari skoðun og þær geta ljóstrað upp um skandala valdamanna, sem aldrei hefði verið svipt hulunni af án nafnleysis.
Auðvitað eru uppljóstranir einskis nýtar fyrir þá sem eru við völd í samfélaginu. Slíkar uppljóstranir snúa nefnilega yfirleitt að þeim.
Nauðsynin fyrir nafnlausar athugasemdir á netinu er meiri á Íslandi en annars staðar. Hér á landi er til siðs að valdaklíkur útiloki fólk frá atvinnumarkaði ef það segir svo sem eitt styggðaryrði um stórmennin sem halda um taumana. Þetta er land mannfæðar, krosseignatengsla og klíkuskapar.
Þegar allt kemur til alls missir fólk trúna á þeim fjölmiðlum sem birta gagnrýnislaust nafnlausar ásakanir. Þannig hefur farið fyrir Eyjunni, sem hefur fengið viðurnefnið „rotþró netsins“ vegna þess að stærstur hluti þess skrifaða efnis sem birtist á síðunni er nafnlausar athugasemdir. En viti menn, fólk er ekki svo vitlaust að gleypa það sem kemur þar fram. Sá sem hins vegar trúir því upp á þjóðina að hún svelgi í sig úr rotþrónni af bestu lyst ætti að endurskoða viðhorf sitt gagnvart fólkinu í landinu. Fólk er ekki fífl.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
