ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

HEIMSKIR GEIRFUGLAR

08:29 › 30. september 2009

Framsóknarmenn eru skrýtnar skrúfur enda fáir og álíka sjaldséðir og hvítir hrafnar. Enn furðulegri eru svo aftur ungir framsóknarmenn þar sem þeir eru í eðli sínu þversögn sem gengur ekki upp vegna þess að olía og vatn eiga betri möguleika á að blandast saman en hugtökin „framsóknarmaður“ og „ungur.“

 Framsóknarmenn eru þó hvergi nærri af baki dottnir og láta ekki útrýmingarhættuna draga sig niður enda kunna þeir vel við sig í fámenni blessaðir eins og sannaðist best þegar einn fyrrverandi formanna flokksins fann það út að ekki þyrftu nema bara tveir framsóknarmenn að koma saman fyrir frama

n spegil og þá væri það fundur.
En snúum okkur aftur að hinum áhugaverðu ungu framsóknarmönnum sem láta sér ekki nægja að ganga þvert á öll lögmál eðlisfræðinnar og rökhyggju með tilvist sinni heldur hefur þeim nú í málefnafátækt sinni og tilgangslausu brölti um óbærilega léttleikandi tilveruna tekist að bregða fæti fyrir formann sinn. Mann sem er í raun blautur á bak við eyrun og ætti því með réttu að teljast til ungra framsóknarmanna ef hann fengist til að kasta af sér sauðargæru gamalmennisins.

En formaðurinn hefur sem sagt reynt að fjölga framsóknarmönnum með því að garga sig hásan í lýðskrumi og virðist meira að segja hafa náð eyrum einhverra sem telja samkvæmt skoðanakönnunum atkvæði sínu best varið hjá Framsóknarflokknum. Ungu framsóknarmönnunum, sem með réttu ættu ekki að vera til, virðist hins vegar ekki finnast það neitt sniðugt að fjölga framsóknarmönnum. Þeirra helsta kappsmál mitt í öllum pólitíska glundroðanum er nefnilega að koma í veg fyrir að fólk fjölgi sér með kynlífi en lífið er svo einkennilegt að öll fjölgum við okkur með samförum. Líka framsóknarmenn.

Ungu framsóknarmennirnir hafa af því þungar áhyggjur að getnaðarvarnir hafi hækkað verulega í verði á árinu um leið og salan hefur dregist saman. „Ungt framsóknarfólk benti í liðinni kosningabaráttu á að hækkandi verð á getnaðarvörnum gæti leitt til þess að ungt fólk leitaði í ódýrari varnir eða hætti notkun þeirra. Mikil þörf er á að bæta aðgengi að getnaðarvörnum fyrir ungt fólk og efla opna umræðu um getnaðarvarnir og ábyrgt kynlíf. Þá ítrekar stjórnin þá skoðun sína að rétt sé að lækka virðisaukaskatt á öllum getnaðarvörnum úr 24,5% í 7%. Lægra skattþrep lækkar verð á getnaðarvörnum, leiðir til aukinnar notkunar þeirra sem spornar þannig gegn ótímabærum þungunum og dregur úr líkum á kynsjúkdómum. Það mun því skila sér í sparnaði fyrir hið opinbera til lengri tíma litið.“

Þetta er fagnaðarerindi unga framsóknarfólksins á meðan pólitíkusar með heilbrigða dómgreind ættu frekar að hafa áhyggjur af hækkandi matvælaverði og því hvernig í ósköpunum fólk eigi að fara að því að brauðfæða þau börn sem nú þegar eru í heiminn kominn.

Frá sjónarhóli formanns Framsóknarflokksins hlýtur þessi boðskapur svo auðvitað að teljast álíka gáfulegur og ef síðustu geirfuglarnir hefðu barist fyrir því að veiðar á þeim yrðu gefnar frjálsar og að verð á haglaskotum væri lækkað sérstaklega um 50 prósent í þeim tilgangi. Það væru sko heimskir geirfuglar sem hefðu stuðlað beint að útrýmingu tegundar sinnar.

En þannig geirfuglar eru ungir framsóknarmenn. Auðvitað blasir við að þeir eru nú fáir framsóknarmennirnir sem fæðast í þennan heim nú til dags en fari svo að ódýrir smokkar fari að grípa ófædda Íslendinga áður en hægt er að leggja drög að þeim með samruna frumu og eggs mun framsóknarfæðingum fækka enn frekar en orðið er.

Þá hlýtur að liggja í augum uppi að nýir genetískir framsóknarmenn verða helst til við óábyrgt kynlíf þar sem framsóknarmennska er skilgreind sem arfgengur sjúkdómur og því hlýtur fólki sem ber meinið í blóði sínu nánast að bera skylda til þess að fara sérlega varlega á rúmstokknum og helst ekki að fjölga sér nema að vandlega athuguðu máli.

Fyrir utan framsóknarþversögnina í þessum málflutningi unga fóksins sem er í raun ekki til er auðvitað gott og blessað að ungir framsóknarmenn reyni að finna sér hluti til þess að hafa skoðanir á en ósköp er það dæmigert fyrir afdalamennsku ungu gamalmennanna að setja í forgang tilraunir til að hemja kynlíf unglinga. Sennilega er auðveldara að leysa Icesave-deiluna ef út í það er farið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?