ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Á sama tíma að ári

08:12 › 29. september 2009

Hrunið á afmæli í dag. Hæhó og jibbíjei. Eða þannig sko. Í dag er ár liðið frá því eigendur Glitnis gerðu úrslitatilraun til að grenja út gálgafrest hjá Seðlabanka Davíðs Oddssonar. Seðlabankinn svaraði með því að yfirtaka bara draslið og í kjölfarið féllu einkavinavæddir bankarnir einn af öðrum í máttvana faðm ríkisins. 29. september árið 2008 er því eðlilega með svartari dögum í sögu lands og þjóðar. The rest is history og því þarf ekki að hafa mörg orð um það sem hefur gengið á í framhaldinu.

Þjóðin gekk eðlilega af göflunum og á meðan hún stóð á gati og hringsnerist um sjálfa sig í miðjum efnahagsrústunum, reitti hár sitt og skegg í sturlaðri örvæntingu yfir framtíðinni undir pottaglamri og sleifarlagi Borgarahreyfingarinnar, risu einhverjir bjartsýnir fábjánar upp á afturlappirnar og boðuðu að upp af rústum hins spillta Íslands mætti reisa nýtt og betra samfélag.

Auðvitað var engum blöðum um það að fletta að samfélagið sem hrundi var gegnsýrt af spillingu, græðgi og alíslenskum óþverra sem hefur grasserað í öruggu skjóli Sjálfstæðisflokksins og framsóknarmanna lungann úr 20. öldinni og því sem liðið er af þeirri 21. Þeir sem féllu fyrir tálsýninni um hið nýja Ísland voru slegnir algerri blindu á styrk og ódauðleika spillingarkerfisins og botnlausa heimsku íslensku þjóðarinnar.

Að ári liðnu höfum við ekki þokast millimetra í átt að nýju og betra samfélagi. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur íslenskra stjórnmálaflokka sem er eiginlega vísbending um að Íslendingar hafi enn ekki orðið fyrir neinum skakkaföllum sem þeir hafa ekki átt skilið eða beinlínis kosið yfir sig af fúsum og frjálsum vilja. Almenningur dinglar enn í skuldasnörunni og hin ægilega góða og fína norræna velferðarstjórn hefur afrekað það eitt að reisa skjaldborg umhverfis aftökupalla skuldaranna. Og til þess að toppa vitleysunna er hljómsveitarstjóri hrunadansiballsins orðinn ritstjóri Morgunblaðsins.

Svarthöfði kemst ekki hjá því að spyrja sjálfan sig að því hvað fólki í siðmenntuðum löndum, sem nennir að fylgjast með vitleysunni hérna á skerinu, finnist um þessa makalausu þvælu sem Íslendingar dunda sér við að spinna í miðri rústabjörguninni.

Björn Bjarnason hefur ekki átt jafn auðvelt og Davíð félagi hans með að finna sér fjöl eftir að hann yfirgaf stjórnmálin með búsáhaldaglamrið í eyrunum. Björn veit samt að ekki er allt með felldu eins og kom fram á bloggsíðu hans í gær. Ráðherrann fyrrverandi lá nefnilega á hleri, eins og hann á kyn til, á Kastrup-flugvelli í Danmörku og heyrði þar ónefndan bissnissmann lýsa því yfir í síma að á Íslandi stefndi allt í annað hrun.

„Á Kastrup-flugvelli komst ég ekki hjá því frekar en aðrir, sem sátu í nágrenni mannsins, sem var í tölvusímtali tímunum saman, að heyra, að hann var að koma frá Íslandi. Þar virðist hann stunda einhver viðskipti. Hann sagðist lítið geta hreyft við þeim vegna ástandsins í landinu. Líklega væri um tapað fé að ræða, enda stefndi allt í annað hrun á Íslandi, að minnsta kosti undir þeirri ríkisstjórn, sem nú sæti.“
Annað hrun?? Ári eftir stóra hvell? Getur þetta verið? Fer Björn með fleipur eða var hann kannski að hlera albilaðan mann? Spyr sá sem ekki veit en hvað er til ráða ef tíðindamaður Björns á Kastrup veit hvað hann syngur? Er Bjarni Benediktsson, frændi Björns, líklegri til að leiða þjóðina út úr hremmingunum en heillum horfin Jóhanna og Steingrímur J. með hælbítana Jón Bjarnason og Ögmund í eftirdragi?

Svarthöfði þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda hvar við verðum á sama tíma að ári.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?