ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Kennitöluflakk

08:14 › 23. september 2009

Það verður ekki af þingmannaþrenningunni alræmdu skafið að hún kann ekki að gera eins og aðrir. Ekki hélst hún í tengslum við framboð sitt nema örskamma stund. Hún gat ekki þaggað niður ósættið eða látið sem allt væri í lyndi. Og til að bíta höfuðið af skömminni þá getur hún ekki einu sinni stundað kennitöluflakk skammlaust.

Ef hægt er að nefna eitthvað sem þjóðarsport íslenskra fjárfesta er það sennilega kennitöluflakk. Að taka eitt fyrirtæki, reka það í þrot og koma svo eignunum undan í annað fyrirtæki á nýrri kennitölu meðan skuldirnar verða eftir í gamla fyrirtækinu. Svona gengur þetta svo hvern hringinn á fætur öðrum og upp á síðkastið eru meira að segja bankarnir farnir að hvetja til svona starfsemi. Kannski ekki skrýtið í ljósi þess hvernig stjórnvöld tóku vænlegasta reksturinn út úr gömlu útrásarbönkunum og skelltu inn í nýja banka á nýjum kennitölum. Stundum hefur það meira að segja gerst að kennitöluflakkarar hafa verið svo kræfir að þeir koma eignunum undan og skuldunum yfir á einhverja aðra eftir að félagið kemst í þrot. Sumir hafa jafnvel verið farnir að innheimta tekjur sínar á nýrri kennitölu meðan þeir hafa enn verið að kaupa vörur og hráefni á gömlu kennitölunni.

Ekkert af þessu virðast þingmenn Borgarahreyfingarinnar, afsakið Hreyfingarinnar, hafa fattað. Auðvitað gerðu þeir eins og lítilla framboða er siður og leystust upp í innbyrðis deilum á sama tíma og almenningur steingleymdi hvað þetta sérstæða framboð stóð fyrir í upphafi. Fyrst var einn þingmaður hrakinn á brott og svo sagði restin sig úr lögum við hreyfinguna sem kom þeim á þing.
Þau gleymdu bara einu. Að þegar Íslendingar fara í svona bix hafa þeir allar eignir og öll verðmæti með sér. Þingmenn (Borgara)Hreyfingarinnar sögðu hins vegar bless og skildu alla ríkisstyrkina eftir í höndum þeirra sem deilt var við í Borgarahreyfingunni. Og fá ekki krónu sjálf í styrki umfram duldu launin sem allir þingmenn fá.

Forystumenn stjórnmálaflokkanna voru nefnilega orðnir þreyttir á þingmönnum sem sögðu sig úr lögum við flokkinn og töldu sig geta staðið utan flokka eða gengið til liðs við þingflokka annarra stjórnmálaflokka. Ekki var nóg með að brotthvarf þingmanna þýddi minni þingstyrk flokksins en ella heldur þýddi þetta líka minni fjárstyrki til flokksins en ella. Sú var nefnilega tíðin að framlög úr ríkissjóði sem voru eyrnamerkt þingflokkum fylgdu þingmönnunum en ekki þingflokkunum. Eftir stöðugt flokkaflakk síðustu ára var forystumönnum flokkanna hins vegar nóg boðið og sögðu hingað og ekki lengra. Breyttu lögum þannig að fjárframlögin fylgdu flokkunum en ekki þingmönnunum og tryggðu þannig að þingmenn gætu rænt þá atkvæðinu þá gætu þeir alla vega ekki rænt þá ríkisstyrkjunum veglegu sem þingflokkar fá.

Og það var í þessu umhverfi sem kennitöluflakkararnir í (Borgara)Hreyfingunni fóru fram. Sögðu skilið við gamla apparatið og létu sig hverfa. En urðu um leið fyrstu kennitöluflakkarar Íslandssögunnar til að skilja allan peninginn eftir í gamla félaginu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?