Vinstri grænir virðast ætla að vinna gegn einu helsta baráttumáli náttúruverndasinna víða um veröld. Þeir ætla að koma í veg fyrir álverksmiðju sem knúin verður af endurnýjanlegri orku.
Svarthöfði er einlægur andstæðingur kolabrennslu, atvinnuleysis og rugls í stjórnmálum. Vopnaður þeirri hugsjón er erfitt að setja sig upp á móti því að álver verði reist á Húsavík, með öllum tilheyrandi störfum og skatttekjum. Heimurinn virkar nefnilega þannig að ef ekki verður reist álver hér, verður það reist annars staðar. Og yfirgnæfandi líkur eru á því að þar verði það knúið kolabrennslu, sem eykur enn á gróðurhúsaáhrifin í heiminum.
Kannski vill ríkisstjórnin ekkert að fólk vinni í álverksmiðjum. Fólk á að gera það sem það vill. Til dæmis vill fólk miklu frekar vera listamenn en að seyða upp eitthvert ál daginn út og inn. Enda var það eitt fyrst verk ríkisstjórnarinnar í baráttu gegn atvinnuleysi að fjölga ríkislaunuðum listamönnum um þrjátíu og þrjá, mitt í skattahækkunum.
Svarthöfði hélt satt að segja að vinstri grænir væru orðnir svo miklir raunsæissinnar að þeir myndu varpa fyrir róða stefnu Andra Snæs Magnasonar í atvinnumálum. Þetta leiðréttist í síðustu viku þegar eftirfarandi frétt birtist á Stöð 2: „Ríkisstjórnin vill eitthvað annað en álver á Bakka.“ Ástæðan er andstaða þingmanna Vinstri grænna.
Einhvern veginn virðist „bara eitthvað annað“ stefnan eiga miklu betur við árið 2007 en nú 2009, þegar peningarnir eru hættir að koma af himnum. Auk þess virðist það vera góðærisfyrirbæri að fólk eigi bara að vinna við það sem það helst langar til að vinna við. Það geta ekki allir verið óhlutbundnir bóhemískir föndrarar, þótt það sé skemmtilegt líf. Einhver þarf að búa til peninga, vinna við framleiðslu, fara á sjóinn og slægja fisk. „Bara eitthvað annað“ er það sem atvinnuatvinnuleysingjar segja við Vinnumálastofnun þegar þeim bjóðast störf.
Meira að segja Dr. Rajendra Pachauri, formaður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, segir að álver á Bakka sé hið besta mál. Hann veitti viðtöku friðarverðlaunum Nóbels 2007, vegna starfs loftslagsnefndarinnar í þágu umhverfismála, jafnvel þótt hann tali algerlega gegn stefnu Andra Snæs og vinstri grænu þingmönnunum. Svo vitnað sé í orð Dr. Pachauri í sjónvarpinu á laugardaginn: „Ef það þarf að framleiða ál þá er betra að gera það með endurnýjanlegri orku heldur en að nota kolabrennslu. Við búum jú öll á sama hnettinum. Ef þið getið gert eitthvað til að minnka útblástur í heiminum, hví þá ekki? Jafnvel þótt það sé til framleiðslu áls.“
Við búum nefnilega öll á sama hnettinum, jafnvel þótt sumir haldi að þeir búi á eigin hnetti. Bláa hnettinum, til dæmis, þar sem allir geta flogið. En hann er draumórar, rétt eins og „bara eitthvað annað“ stefnan.
Þessi hugarheimur íslenskra náttúruverndasinna á sér einna helst hliðstæðu í Kaupthinking-myndbandi samnefnds banka, sem búið var til mitt í góðærisæðinu. „Ef við viljum breyta heiminum, getum við það. Bara ef við hugsum að við getum það,“ segir þar ítrekað. Sagan hefur sýnt að fólkið í Kaupþingi gerði þau reginmistök að halda að það gæti gert hvað sem er, án utanaðkomandi áhrifa veruleikans.
Einu störfin sem hafast upp úr þessu eru á kaffihúsunum, enda hefur margur latte verið drukkinn undir Kaupthinking miðborgarbóhema og draumkenndum umræðum um „bara eitthvað annað“.
Blogg
„Kaupthinking“ VG
11:16 › 22. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
