ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Réttarhöld Heimdellinga

08:12 › 2. september 2009

Einhver hlýtur að hafa verið að rægja Árna H vegna þess að þegar hann vaknaði einn morguninn var búið að henda honum út af Facebook. Þessi óblíðu örlög Árna H minna um margt á Jósef K sem átti ekki sjö dagana sæla í Réttarhöldunum eftir Franz Kafka. Jósef K hafði að vísu ekki aðgang að internetinu og þurfti því aldrei að hafa áhyggjur af því að sjálf hans myndi leysast upp við það að detta út af Facebook.

Hann vaknaði hins vegar við vondan draum dag nokkurn þegar hann var fyrirvaralaust og án skýringa handtekinn fyrir óskilgreindan glæp. Tilvist Jósefs K hrundi vitaskuld til grunna og nánast vitstola af örvæntingu dróst hann í gegnum drepleiðinlega skáldsögu í leit að skýringum á þessari tilefnislausu handtöku.

Facebook-brottrekstur Árna H var jafn fyrirvaralaus og handtaka Jósefs K eins og Árni H lýsir á bloggsíðu sinni (sem hefur ekki enn verið lokað): „Áður en þetta gerist fæ ég engar viðvaranir eða skilaboð um að slíkt kunni að vera í vændum, heldur er aðgangurinn minn einfaldlega eyðilagður.“ Árni H er líka alveg jafn blásaklaus og Jósef K og veit ekkert hvaðan á hann stendur veðrið. „Mér er fyrirmunað að skilja hvernig á þessu stendur. Mér skilst þó að það þurfi ekki meira til en að einhverjir örfáir taki sig til og smelli á hnapp á viðkomandi síðu sem heitir „report“ til þess að manni sé hent út og síðunni eytt,“ bloggar Árni H.

„Það er ekkert útskýrt hvaða reglur maður á að hafa brotið eða hver hafi metið það sem svo að slíkt brot hafi átt sér stað, heldur er manni einfaldlega sparkað út. Ég hef heyrt um nokkur svipuð dæmi hjá fólki þar sem aðganginum var skyndilega eytt og það eina sem var í boði var að senda tölvupóst á staðlað netfang hjá Facebook sem er svarað seint og síðar meir.“

Jósef K sjálfur hefði ekki getað bloggað betur um ófarir sínar hefði hann komist í nettengda tölvu. Hann hefði þó hugsanlega getað sent þjáningabróður sínum Árna H tölvupóst um að svarið þurfi ekkert endilega að koma seint og síðar meir. Kannski kemur það bara aldrei. Það eina sem Jósef K og Árni H vita fyrir víst. Eina haldreipið þeirra í sturluðum heimi er að einhverjir hljóti að hafa rægt þá.
Óvæntur Facebook-síðu missir Árna H, sem er fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna, er sérlega bagalegur vegna þess að hann stendur í harðri kosningabaráttu um hið eftirsóknarverða og margrómaða embætti formanns Heimdallar, félags ungs sjálfstæðisfólks í Reykjavík. Allir vita að í nútímapólitík skilur Facebook á milli feigs og ófeigs í kosningum og eina huggun Árna H er að mótframbjóðandi hans, Davíð Þ, hefur einnig verið útlægur ger af Facebook. Því virðist sem einhverjir hafi líka verið að rægja Davíð Þ. Ef hér væri ekki um unga sjálfstæðismenn að ræða myndi Svarthöfði freistast til þess að álykta að stuðningsmenn Davíðs Þ hefðu verið að bera út róg um Árna H og öfugt.
Annars eru þessi grimmu örlög Davíðs Þ og Árna H ákaflega ljóðræn og viðeigandi þar sem þeir spegla sig í Jósef K vegna þess að  ástandið í Sjálfstæðisflokknum hefur í besta falli verið kafkaískt á síðustu mánuðum. Facebook-réttarhöld Árna H og Davíðs Þ beina líka sjónum að öðru verki Kafka, Hamskiptunum, sem kallast á við flokkinn þeirra. Í Hamskiptunum átti vesalings Gregor Samsa eiginlega verri dag en Jósef K, Árni H og Davíð Þ til samans þegar hann breyttist einn góðan veðurdag í pöddu. Ættingjum og vinum Gregors var auðvitað ekki skemmt við þessa breytingu enda segir það sig sjálft að enginn vill hafa risavaxna pöddu inni á gafli hjá sér.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur því miður mátt sætta sig við hlutskipti Gregors Samsa en einn góðan veðurdag í október árið 2008 vaknaði Sjálfstæðisflokkurinn við það að hann hafði breyst í risastóra og ógeðslega pöddu sem flestir í kringum hann sneru baki við og vildu sem minnst af vita.

Þannig að í raun er ekkert óeðlilegt við það að í þeim bæklaða og kafkaíska raunveruleika sem nú blasir við Íslendingum taki ígildi Jósefs K við formennsku í ungliðahreyfingu flokks sem er svar Íslands við Gregori Samsa.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?