ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Eldklerkur á lausu

08:00 › 18. september 2009

Eftir að sundurleitri hjörð Íslendinga var steypt í glötun fattaði liðið allt í einu að það skortir leiðtoga. Húsbóndaholl og undirgefin elti þjóðin alls konar fína menn lóðbeint til helvítis og vill samt enn halda áfram að elta en vill nú fá leiðtoga á silfurfati til þess að teyma sig út úr ógöngunum. Samkvæmt glænýrri markaðsrannsókn virðist skorturinn á riddurum á hvítum hesti á Íslandi tilfinnanlegur. Fólki dettur beinlínis enginn raunhæfur möguleiki í hug. Liðið sem þó komst á blað með örfá prósentustig er ekki líklegt til neinna stórræða enda flest búið að afsanna sig sem efni í farsæla leiðtoga.

Við fyrstu sýn erum við því í verulega vondum málum. Ekki síst þar sem Súpermann er upptekinn við að gæta fólksins í Metrópólis og Batman hefur ekki lögsögu utan Gotham-borgar. Sem betur fer er þó hjálpin næst þegar neyðin er stærst eins og fólk sem hefur borðað mörg páskaegg er svo meðvitað um. Þá má ekki heldur gleyma því að samkvæmt veðurmælingum Borgarahreyfingarinnar er dimmast fyrir dögun. Og sem betur fer leynist í okkar röðum í það minnsta einn maður sem getur komið okkur villuráfandi sauðunum í öruggt skjól.

Gunnar í Krossinum er ekki aðeins fastur fyrir, uppfullur af sannfæringarkrafti og orðkynngi sem getur á sæmilegum degi stöðvað hraunflóð og lyft gengi krónunnar. Hann er innblásinn heilögum anda, beintengdur við almættið sem eins og alþjóð veit hefur andstyggð á gullkálfum og dansi í kringum þá. Og sjá! Nú þegar hinni íslensku þjóð er loksins orðið bumbult af því að sitja með syndinni í kaffi árum saman og vill ekkert frekar en snúa baki við teinóttum gullkálfunum og sverja af sér alla dýrkun á þeim þá er eldklerkurinn Gunnar rétti maðurinn til að leiða söfnuð hinna iðrandi og stórskuldugu syndara.

Almættið hefur meira að segja búið svo um hnútana að Gunnar er á lausu í bókstaflegri merkingu þannig að hann ætti að hafa tíma og orku til þess að sinna hinni þjáðu þjóð. Forverar þessa íslenska eldklerks 21. aldarinnar hafa með beintenginum sínum við almættið framið alls kyns kraftaverk og skemmst er að minnast afreka síra Jóns Steingrímssonar sem kvað hraunflóð í kútinn í Skaftáreldum sautjánhundruð og súrkál.

Þeir allra svartsýnustu leyfa sér að bera afleiðingar hrunsins saman við móðuharðindin forðum þannig að í raun er það svo sjálfsagt og eðlilegt að Gunnar taki að sér að bjarga Íslendingum og hreinsa til eftir sótraftana í söfnuði Mammons.

Eldklerkurinn Gunnar er sem betur fer á lausu og hans tími er blessunarlega kominn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?