Íslenska þjóðin leitar nú logandi ljósi að frelsara eftir að stríður straumur þeirra hefur brugðist.
Fyrsti frelsari vor á síðari tímum var Davíð Oddsson, en hann frelsaði okkur í þriðja heims stíl og tók sjálfur öll völdin. Það verður að segjast eins og er að útrásarvíkingar voru dáðir sem frelsarar árin 2003 til 2007, allt fram að falli. Eftir hrun hafa íslenskir frelsarar dottið úr tísku, ef frá er talin Jóhanna Sigurðardóttir, en endurkoma hennar var ekki lengi nýmóðins.
Svo lengi sem elstu menn muna hefur þjóðin þráð að útlendingur komi til landsins og blessi það. Yfirleitt höfum við orðið fyrir vonbrigðum. Helstan má nefna Hollendingin Dithmar Blefken, sem mætti gestrisni okkar á 16. öld og skrifaði síðan pínlegar lýsingar á þjóðinni sem hann kynnti fyrir stórþjóðum Evrópu, okkur til hneysu.
Í aðdraganda hrunsins hóf innreið sína Robert Wade, hagfræðiprófessor frá Bretlandi. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, æviráðinn prófessor Háskóla Íslands, kallaði hann "hinn nýja Blefken" í Fréttablaðinu 11. júlí fyrir hrun, af því að Wade dirfðist að segja að bankakerfið stæði á brauðfótum. Í niðurlægingu sinni bíður íslensk alþýða eftir nýjum Blefken sem færir okkur ískaldan sannleikann um heimsmet okkar í efnahagsrugli. Eða viljum við Jesú Krist?
Við höfum opnað arma okkar fyrir ýmsum kennismiðunum og spámönnunum undanfarna mánuði, bæði Michael Hudson hrakspámanni, John Perkins hagkerfamorðingja og Evu Joly spillingarbana. Ferskasti frelsarinn er hinn alvitri Nóbelsverðlaunahafi Joseph Stiglitz. Ekki er þó ljóst undan hverju Stiglitz ætlar að frelsa okkur. Hugmyndin var að hann kæmi hingað og bolaði Alþjóðagjaldeyrissjóðnum burt, en svo segir hann bara að sjóðurinn sé að standa sig vel. Á sama tíma segir hann að við höfum ekkert við gjaldeyrislánið frá sjóðnum að gera. Slíkur frelsari er ótækur. Hann ýmist rústar musteri markaðstorganna eða upphefur það.
Síðastur kom Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. En hann vill einungis kljúfa Atlantshafið fyrir okkur ef við stöndumst 2.500 spurninga inntökupróf.
Ekki er ljóst hver mun á endanum frelsa þjóðina úr hennar sjálfsprottnu Sódómu. Af orðum forsvarsmanna Hell's Angels í DV að dæma er koma samtakanna til landsins sú blessun sem við þurfum. Búast má við töluverðum fjölda vítistengdra ferðamanna. Vítisenglarnir munu svífa að frá öllum helstu yfirráðalöndum sínum færandi gjaldeyri inn í okkar soltna hagkerfi. Þeir geta farið gullna hringinn, komið við á Víti við Öskju og hangið á Ingólfstorgi. Svo getum við sent okkar eigin Vítisengla í víking til Evrópu.
Kannski það sé skárra en ekkert að Ísland fá inngöngu í Hell's Angels.
Blogg
Frelsarar Íslands
07:28 › 11. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
