ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 3m/s E
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Farvel, mitt fólk

08:00 › 7. ágúst 2009

Í ungdæmi sínu lærði Svarthöfði eitt, því fámennari sem stjórnmálaflokkar eða félagasamtök verða því meiri líkur eru á að þau klofni. Auðvitað má finna dæmi þess að stórir flokkar klofni, svo sem Sjálfstæðisflokkurinn 1987 og 1999, en einhvern veginn virðist það loða við smáflokka og fámenn félög að deilurnar verða harðari og límið minna en í stóru flokkunum og samtökunum.

Eða hvernig  væri saga vinstrihreyfingarinnar á Íslandi ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki haft fyrir venju að klofna eins og einu sinni á áratug? Þar var klofningur flokksins kominn á það stig að lýsa mætti sem hálfgerðu listformi. Og einhvern veginn virtist það vera svo að því minni sem flokkurinn varð áttu flokksmenn erfiðara með að halda sig í einu félagi.

Þess vegna þarf það kannski ekki að koma á óvart að Borgarahreyfingin virðist á barmi klofnings, þar sem einn þingmaður talar ekki við þrjá samherja sinna og hvetur þá til að hætta á þingi svo fólk sem fylgi stefnu flokksins betur komist að í þeirra stað. Og þremenningarnir gefa auðvitað lítið fyrir sinn stefnufasta samherja og kemur ekki til hugar að hlusta á hann. Forsjálir menn sáu reyndar fyrir kosningar að það kynni að verða erfitt að halda Borgarahreyfingunni saman. En að hún skyldi ekki halda út nema tæpa þrjá mánuði áður en allt logaði stafna á milli.

Reyndar er það ekkert einsdæmi að flokkar og félög klofni. Frjálslyndi flokkurinn klofnaði til dæmis áður en hann varð til. Þegar Sverrir Hermannsson ákvað að fara í samstarf við nokkra forystumenn Samtaka um þjóðareign og hleypa þeim í flokkinn sinn hefur hann varla séð það fyrir að þeir ættu eftir að reyna að reka hann úr sínum eigin flokki. Sverrir var þó við öllu búinn og skráði kennitölu nýja flokksins á sjálfan sig og átti því bæði nafnið og flokkinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?