Þingmönnum er vissulega vorkunn. Þeir hafa verið önnum kafnir í langan tíma vegna ESB-aðildarumsóknar og síðan Icesave-ábyrgðar. Þess vegna er kannski ekki furða að þeir hafi gleymt gömlum spádómum um að besta leið þeirra til að vera í tengslum við umbjóðendur sína sé sú að upplýsa þá um störf sín og stefnu á heimasíðum. Og það þrátt fyrir að þingið sjái ástæðu til auglýsa heimasíður þingmanna sérstaklega á þingvefnum .
Sumir þingmenn blogga vissulega í gríð og erg. Við skulum ekki draga úr því. Dæmi um það er Birgitta Jónsdóttir sem keppir við þingmenn á borð við Eyglóu Harðardóttur, Ólínu Þorvarðardóttur, Björgvin Val Gíslason og Unni Brá Konráðsdóttur um að yfirtaka bloggmeistaratitil Alþingis af Birni Bjarnasyni sem skrifar mikið þrátt fyrir að vera hættur á þingi.
Svo eru þeir sem skrifa reglulega. Þingmenn eins og Jónína Rós Gunnarsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Ögmundur Jónasson og Þór Saari skrifa öll reglulega og nokkuð oft. Aðrir þingmenn virðast hins vegar síður í tengslum við netverjann í sjálfum sér.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, skrifaði síðast um sjálfstjórn á Grænlandi, fyrir tveimur mánuðum. Birkir Jón Jónsson hefur ekkert skrifað síðan í lok maí. Árni Þór Sigurðsson hefur ekki skrifaði á vef sinn í næstum mánuð en þó átt spretti í sumar. Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar af og til og Jóhanna Sigurðardóttir, sem eitt sinn var afar duglegur bloggari, skrifar ekki á síðu sína nema um það bil einu sinni í mánuði. Jón Bjarnason skrifar við sérstök tækifæri, svo sem 1. maí, á Eurovision, Ungmennalandsmóti og nú þegar Sementsverksmiðjan á Akranesi virðist í dauðakippunum. Unga kynslóðin á þingi, þessi sem ólst upp við pólitísk vefrit er kannski ekki mikið betri. Katrín Jakobsdóttir skrifaði síðast 7. mars og nafna hennar Júlíusdóttir, sem einnig situr í ríkisstjórn, skrifaði síðast á heimasíðu sína 18. mars.
Einhverjir þingmenn eru þó að vakna til lífsins nú þegar sumarið tekur að víkja fyrir haustinu. Magnús Orri Schram hafði lítið bloggað eftir kosningar þar til hann skrifaði allt í einu þrjár greinar á skömmum tíma nú nýlega. Sigurður Ingi Jóhannsson dettur í gírinn af og til og sama má segja um Valgerði Bjarnadóttur og Vigdísi Hauksdóttur.
Svo eru þeir þingmenn sem virðast hafa gleymt bloggsíðum sínum. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra skrifaði síðast grein um Sjálfstæðisflokk á harðahlaupum. Það var 23. apríl, á fæðingarafmæli nóbelskáldsins og tveimur dögum fyrir kosningar. Flokksbróðir hans Guðbjartur Hannesson hefur ekkert skrifað síðan tæpri viku fyrir kosningar. Svipaða sögu er að segja af Helga Hjörvar. Illugi Gunnarsson virðist lítið hafa haft um að skrifa frá því landsfundi Sjálfstæðisflokksins lauk í mars. Heimasíða hans er reyndar þeirrar tegundar að hann virðist mest lítið hafa skrifað sjálfur og aðallega stuðningsmenn hans séð um slíkt skömmu fyrir prófkjör. Flokksbróðir hans Jón Gunnarsson hefur aðeins einu sinni uppfært síðu sína eftir að hann þakkaði fyrir stuðninginn í prófkjöri í mars og þá til að setja inn blaðagrein. Svipaða sögu er að segja af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ólöf Nordal skrifaði mánaðarlega fram í maí. Gamli blaðamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson var duglegur bloggari fram í júlí og Siv Friðleifsdóttir er auðvitað manna duglegust við uppfærslur en þar er þó fyrst og fremst um að ræða dagbók þingmanns en síður umræður um pólitísk málefni. Steinunn Valdís hefur einu sinni bloggað síðan í mars. Meira að segja Össur Skarphéðinsson, sem ritað hefur sumar frægustu bloggfærslur þingmanna, hefur ekki ritað á síðu sína síðan daginn fyrir kosningar.
Auðvitað eru sumir þingmenn í sérflokki. Síðasta færslan á vef Péturs Blöndal er dagsett 27. október, að vísu ekki í fyrra heldur árið 2006. Vel fyrir hrun. Og já. Heimasíða Björgvins G. Sigurðssonar skartar enn sama textanum og birtist þar allt í einu í kringum bankahrunið. „Verið er að endurskoða og breyta vefsvæðinu bjorgvin.is.“
Blogg
Hin gleymda list
08:17 › 26. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
