Svarthöfði er aldeilis hlessa. Það kemur nefnilega í ljós að þeir sem gagnrýna bankamenn landsins eru á nasistaveiðum eins og í Danmörku eftir seinna stríð.
Engeyingurinn og sjálfstæðismaðurinn Benedikt Jóhannesson skrifaði föðurlega grein um ástandið á Íslandi, með samanburði við póstnasísku Danmörku. „Menn kepptust við að saka náungann um að hafa verið nasistar,“ skrifar hann. „Ég segi: Látum dómstólana um að dæma,“ segir hann svo, og vill meina að almenningur sé of reiður yfir efnahagshruninu.
Svarthöfði verður að vera sammála Benedikt. Íslendingar ættu að skammast sín fyrir að leita sökudólga á efnahagshruninu. Og þetta gildir um fleiri. Í mörgum löndum Evrópu var gripið til ósiðmenntaðra úrræða til að ráða niðurlögum nasismans á sínum tíma. Pólverjar, Hvít-Rússar, Frakkar og fleiri beittu nasista hreinlega ofbeldi til að bola þeim frá.
Gleymum því ekki að nasistar áttu fjölskyldur. Börnin þeirra og eiginkonur gerðu ekkert rangt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Og þótt nasisminn hafi vissulega brugðist var hugmyndin að baki honum upphaflega að auka einingu meðal þýsku þjóðarinnar. Nasistarnir vissu fæstir hvað þeir voru að gera. Hvers vegna var ekki komið þeim til aðstoðar þegar í óefni stefndi? Hvers vegna gátu þjóðir heimsins ekki samið við Adolf Hitler? Hvers vegna var Adolf bara leyft að taka Súdetahæðirnar og Austurríki en ekki þýska hluta Póllands? Kannski hefði það verið nóg. Hvers vegna fékk Kaupþing bara tæplega 100 milljarða lán frá Seðlabankanum rétt fyrir „Untergang“ en ekki rúmlega 300 milljarða?
Hreiðar Már Sigurðsson, arkitekt Kaupþings-módelsins, sér enga ástæðu til að biðja þjóðina afsökunar. Hann telur að aðrir eigi að gera það. Sökin er Seðlabankans sem studdi hann ekki nægilega mikið.
Svo vitnað sé í Adolf Eichmann, sem skipulagði flutninga gyðinga í útrýmingarbúðir án þess að telja sig bera ábyrgð á útrýmingunni: „Iðrun er fyrir lítil börn.“ Enda má segja að sá sem skipuleggi lestarferðir drepi engan.
En líklega er það rétt, sem margir hafa sagt, að umræðan endar þegar gripið er til nasistalíkinga. Enda drápu hvorki bankarnir né almenningur nokkurn mann. Bankarnir rústuðu bara lífsafkomu og kaupmætti fólks og það hefur í mesta lagi slett málningu.
Blogg
Til varnar nasistum
13:13 › 21. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
