Nýverið komst niðurstaða í rannsókn á því hversu langan tíma það tekur hugsjónafólk að umbreytast í raunsæja, eigingjarna tækifærissinna. Niðurstaðan var liðlega þrír og hálfur mánuður.
Þetta hófst eins og raunveruleikaþáttur. Fjórir borgarar voru fengnir til að starfa í umboði almennings í landinu á hinu háttvirta Alþingi Íslendinga. Verkefnið sem þeir fengu var að fylgja stefnuskrá um að uppræta flokkapólitík og pólitíska spillingu og bæta lýðræðið.
Um skeið talaði fólkið af miklum eldmóði og fylgdi siðferðislegum frumreglunum sem lagt var upp með. Þau unnu eftir "prinsippum", sem hér er nefnt á enskri tungu, þar sem hugarfar Íslendinga hefur ekki megnað að finna upp á slíku orði, enda líklega ekkert slíkt til í íslenskum raunveruleika til að vísa til. Um miðjan júlí, tæpum þremur mánuðum eftir að tilraunin hófst, sviku borgararnir kosningaloforð sín og fóru að stunda flokkapólitík.
Fyrsta brot þingmanna Borgarahreyfingarinnar fólst í því að svíkja kosningaloforð og eigin sannfæringu með því að neita að styðja aðildarviðræður um ESB, nema ef hinir flokkarnir myndu hlíða hreyfingunni og standa gegn Icesave-samningnum. Brotið er tvíþætt, annars vegar gegn trausti kjósenda um að þau myndu fylgja ESB-umsókn og vinna gegn flokkapólitík, og hins vegar gegn þeirri grundvallarhugsjón hreyfingarinnar að þjóðin eigi að ráða í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Annað brot Borgarahreyfingarinnar fólst í því að beita smjörklípu á andstæðing sinn, sem reyndist vera Þráinn Bertelsson, einn borgaranna fjögurra. Þráinn hafði gerst sekur um að standa gegn fyrsta brotinu. Eftir það sáði Margrét Tryggvadóttir, önnur hinna fjögurra borgara, fræjum um andlegan heilsubrest Þráins. Hún skrifaði bréf til varamanns Þráins, þann hinn sama og myndi komast inn á þing ef Þráni yrði bolað burt. "Ég ræddi við sálfræðimenntaðann mann í dag sem er vel inni í málum hreyfingarinnar og hann grunar að Þránn sé með altzheimer á byrjunarstigi," skrifaði Margrét, í áhyggjutón.
Með bréfi sínu sló Margrét Davíð Oddssyni við í smjörklípum. Nema hvað að Davíð hafði vit á því að senda aldrei tölvupóst, enda vill enginn að slíkt undirferli verði opinbert. Tvennt er athyglisvert við bréfið. Hún sendir það á þann aðila sem hefur hagsmuni í að Þráinn fari, enda fái hún þá upp í hendurnar völd, auknar tekjur og tækifæri til að auka þetta tvennt enn meira. Í öðru lagi nær hún að leggja að Þráni með vopni sem ekki er hægt að verjast. Sá sem er geðveikur eða með alzheimer getur ekki svarað fyrir það. "Ég er ekki með Alzheimer," gæti Þráinn sagt. "Þú ert bara búinn að gleyma því karlinn," hugsa hinir. Niðurstaða umræðunnar nú er að Þráinn gæti verið með Alzheimer, því það hefur hvorki verið sannað né afsannað.
Í stað þess að leiðrétta Alzheimer Þráins heldur Margrét áfram. Hún segist enn þá bara hafa haft raunverulegar áhyggjur af honum. Það hefði verið svo gott fyrir hann að fá "hjálp". Með því staðfestir hún opinberlega skoðun sína um Alzheimer Þráins. Hin leiðin hefði verið að draga orðin til baka og biðjast afsökunar, en á því hefði Margrét tapað. Í eftirleiknum valdi hún að hygla sjálfri sér á kostnað Þráins. Helsta vörn hennar er að bréfið hefði ekki átt að verða opinbert. Hugmyndin var sem sagt að skapa hljóðlátlega efasemdir innan hreyfingarinnar um geðheilsu Þráins. Með öðrum orðum er vörnin sakleysi vegna misheppnaðs undirferlis.
Ef einhver er með Alzheimer er það Margrét, sem hefur gleymt grundvallaratriðunum í þeim boðskap sem kom henni á þing. Þess vegna vekur helst athygli að hún nýtur óskoraðs stuðnings hinna tveggja þingmanna hreyfingarinnar.
Þá er komið að þriðja broti þingmanna Borgarahreyfingarinnar. Þau skera sig frá grasrótinni og hunsa fund með stjórn hreyfingarinnar, sem er tengiliður þeirra við almenning. Ein þeirra neitar að víkja þótt stjórn flokksins biðji hana um það. Hin verja ómerkilegustu aðför sem gerð hefur verið að íslenskum stjórnmálamanni. Þau fórna hagsmunum umbjóðenda sinna fyrir persónulega hagsmuni sína. Þau horfa upp á formanninn víkja, vegna viðbjóðs hans á vinnubrögðunum. Þau horfa upp á stjórnarmenn í hreyfingunni hverfa frá vegna niðurlægingarinnar sem þingmennirnir kalla yfir hana með því að svíkja grundvallaratriði boðskaparins. Þau eru tilbúin að eyðileggja allt fyrir öllum til þess að þau haldi sjálf völdum. Þau eru orðin það sem þau áttu að útrýma.
Three Strikes, You're Out!
Blogg
Alzheimer Margrétar
08:36 › 18. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
