Svarthöfði er einföld sál eins og allar þær þúsundir Íslendinga sem staðfastar kjósa Sjálfstæðisflokkinn sama á hverju dynur. Davíð Oddsson hefur því eðlilega verið sólin í lífi Svarthöfða allt frá því hann tók ungur við stjórnartaumum Reykjavíkurborgar og leiddi síðan óviðjafnanlega sigurgöngu flokks teinóttra broddborgara í áraraðir. Svarthöfði elti leiðtogann, fylgispakur mjög, og var á tímabili farinn að trúa því að hinn mikli marskálkur væri ósigrandi með öllu. Því runnu grímur tvær á Svarthöfða þegar halla fór undan fæti og foringinn gerði röð taktískra mistaka sem urðu að lokum til þess að hann neyddist til þess að hrökklast í útlegð í Svörtuloftum.
Hjarta Svarthöfða tók því gleðikipp þegar hann fletti sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina og sá að hinn íslenski Napóleon var afturgenginn. Þarna var Davíð mættur í gamla góða toppforminu, vígreifur með blóðbragð í munni og fullum herklæðum. Þarna þekkti Svarthöfði sinn mann! Allir sem eru að grautast í Icesave-ruglinu eru fábjánar en Davíð er með þetta allt á tæru og hefur takmarkaðan áhuga á að setja þjóð sína á hausinn með því að greiða skuldir óreiðumanna. Svarthöfði öðlaðist aftur von fyrir hönd Íslendinga og vonar nú heitt og innilega að Davíð hafi ekki sagt sitt síðasta í þessu máli. Geti einhver skorið okkur úr skuldasnöru Landsbankamanna er það hann. Davíð Oddsson.
Borðalagðir generálar og aðrir sem hafa vit og reynslu á hernaði hafa allir lesið það í sígildu hernaðarriti að almennilegar orrustur eru unnar áður en haldið er í bardaga. Hugarfarið skiptir öllu ásamt útsjónarsemi og kænsku í bland. Lykillinn að öruggum sigri er svo vitaskuld sá að draga andstæðinginn inn á heimavöllinn og slátra honum þar. Þegar óvinurinn er kominn á framandi slóðir stendur hann höllum fæti, fer á taugum, gerir mistök og fellur. Þetta geta þýskir hermenn, sem töpuðu fyrir rússneska vetrinum í seinna heimsstríði, vottað.
Davíð er alvöru vígamaður og allir sem þekkja feril hans vita að hann kaus alltaf ófrið frekar en frið fengi hann að velja. Illu heilli fór honum að förlast á seinni árum en slíkt kemur fyrir bestu herforingja og rétt eins og Patton átti það til að klikka gerði Davíð sín axarsköft þannig að undanhald varð að lokum hans eini kostur. Hann hélt þó auðvitað áfram að láta ófriðlega og er því í fínni æfingu fyrir þá skálmöld sem nú geisar og gæti orðið orrusta lífs hans.Nú þarf bara að fella Icesave-samninginn og sleppa Dabba lausum.
Stríðsáætlun Davíðs er einföld og getur ekki klikkað. Hann vill skora Hollendinga og Breta á hólm og mæta þeim á heimavelli en eins og Davíð hefur svo réttilega bent á er varnarþing íslenska ríkisins á Íslandi og þar skal úrslitabaráttan því fara fram. Davíð vill draga dólgana fyrir íslenska dómstóla og þar munu þeir steinliggja. Það veit Davíð vegna þess að hann bjó dómstólana til. Hannaði þá og skipaði þá úrvalsmönnum úr eigin liði. Davíð er því að blása til orrustu sem hann getur ekki tapað. Niðurstaða íslenskra dómstóla er fyrirfram ákveðin og bardaginn því unninn áður en hann hefst. Samt er þó líklega best að hafa varnarþing ríkisins í þessu tilfelli ekki bara á Íslandi heldur nánar tiltekið á Norðurlandi eystra. Þar munu óvinir íslenska ríkisins nefnilega þurfa að ganga fyrir Þorstein nokkurn Davíðsson. Handvalinn, harðan en réttlátan dómara sem getur fellt jafnþunga salómonsdóma og hinn smurði leiðtogi.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
