Undanfarnar vikur hefur þjóðin sýnt af sér þá fádæma ósvífni að vega í orðum að okkar ástkæru útrásarvíkingum. Bloggheimar hafa logað af yfirlýsingum um að Björgólfarnir séu skaðræðisgripir eða jafnvel landráðamenn. Þetta er auðvitað óþolandi og full ástæða til að taka á málum.
Þarna er um að ræða dáðadrengi sem tóku að sér að bjarga banka úr klóm ríkisins. Síðan reyndu þeir að reka bankann undir samfélagslegum formerkjum með því að láta hann lána sínum eigin fyrirtækjum. Þar má nefna Morgunblaðið sem er þjóðinni nauðsynlegra en Þjóðkirkjan. Mogginn hefur af óviðráðanlegum utanaðkomandi ástæðum verið rekinn með tapi. Þá komu Bjöggarnir til skjalanna og niðurgreiddu blað allra landsmanna. Þar sem þeir eru einstaklega siðavandir þá ritskoðuðu þeir blaðið í leiðinni. Eimskip var einnig í vandræðum og Bjöggarnir keyptu skipafélagið til að bjarga því. Landsbankinn lagðist á árarnar.
Á gullaldartíma frjálshyggjunnar var það þannig að fjölmiðlar og bókaútgáfur gengu dálítið lausum hala. Feðgarnir tóku að sér að leiðrétta vitleysuna með því að kaupa upp sem flest fyrirtæki. Þannig hentu þeir heilu upplögunum af bókum ef þær særðu réttlætiskennd þeirra. Og öll þjóðin var ánægð með góðu útrásarvíkingana sem sáu um að halda uppi siðferði í landinu. Fyrir gráglettni örlaganna hafa þeir nú tapað mestum sínum peningum og geta aþnnig ekki lengur keypt fjölmiðla og haldið uppi velsæmi hjá fjórða valdinu. Þess sér reyndar strax merki að siðameistarar útrásarinnar eru farnir af vellinum. Því er blákalt haldið fram að feðgarnir eigi peninga í skattaskjólum erlendis og séu að stela af þjóðinni sem þeir elska af öllu sínu útrásarhjarta.
Nú er svo komið að útrásarvíkingurinn Björgólfur Thor er búinn að fá nóg. En að þessu sinni geror hann ekki einu sinni tilraun til að kaupa fjölmiðla eða bloggheima. Hann ætlar þess í stað að gera árásir á alla þá íslensku fjölmiðla sem hafa hallað orði á þá feðgana. Útrásarvíkingurinn hefur vikið fyrir árásarvíkingnum. Í stað útrásar með íslenska peninga að vopni undirbýr hann nú innrás með réttlætið að vopna. Og það er skiljanlegt. Hvað er þessi þjóð að rífa kjaft þótt feðgarnir hafi steypt henni í fjárhagslega glötum. Það er auðvitað þjóðin sem er skaðræði en ekki feðgarnir.
Blogg
Víkingur gerir árás
08:31 › 31. júlí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
